Fjórða og næst síðasta umferð aðalsveitakeppninnar fór fram á fimmtudagskvöld. Heldur dróst saman með efstu sveitum og stefnir í spennandi lokaumferð.
Fyrsta kvöldið í Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í gærkvöldi. Allt um það á heimasíðunni.
Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman á Heimalandi til að hefja leik í 5 kvölda aðaltvímenning félagsins, Samverkstvímenningnum, þar sem 4 bestu kvöldin af 5 telja til úrslita.
Jón Baldursson og Sigurbjörn Haraldsson, enduðu í 2 sæti í Slava Cup mótinu sem haldið var í Moskvu um síðustu helgi Sveinn Eiríksson og Þröstur Ingimarsson enduðu 7-8 sæti og Júlíus Sigurjónsson sem spilaði við Michael Capaletti enduðu í 18.
Um næstu helgi eða 4-5.mars verður framhaldið með landsliðskeppnina´ frá því í byrjun janúar og verður byrjað að spila kl. 10:00 á laugardeginum.
Aðalsveitakeppnin hélt áfram á fimmtudagskvöldið. Kristján og Félagagar virðast vera óstöðvandi. En spyrjum að leislokum. Butler er klár frá síðustu tveimur kvöldum.
Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld með sigri Gunnlaugs Karlssonar og Ásmundar Örnólfssonar. All um það á HEIMASÍÐUNNI Næsta keppni er Hraðsveitakeppni sem er spiluð 02. 09. 16. og 23 mars.
Nú er sveitakeppni félagsins lokið með glæsilegum sigri Fisksalanna fisléttu. Í lokaumferðinni mættust Fisksalinn og Presturinn. Prestakallarnir héldu vel við fram að predikun og munaði einungis 3 impum í hálfleik og allt gat gerst.
Aðalsveita keppni briddsfélags Selfoss er nú í gangi. Lokið er tveimur umferðum af 5. Sveit Kristjáns Más er kominn með nokkuð þægilega forystu, en það er nóg eftir og munu menn sækja að þeim félögum.
Teykjanesmótinu í sveitakeppni var að ljúka rétt í þessu með sigri Bláu könnunar en GSE hlaut hins vegar Reykjanesmeistaratitilinn þar sem þeir höfðu tilskilinn fjölda spilara úr briddsfélögum á Reykjanessvæðinu.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar