10. september 2003

miðvikudagur, 10. september 2003

Stjórnarfundun 10. september 2003

Mættir á fundinn: Jón Sigurbjörnsson, Erla Sigurjónsdóttir,Kristján Már Gunnarsson, Stefanía Skarphéðinsdóttir, Elín Jóhannsdóttir, Matthías Þorvaldsson og Haukur Ingason

1. Skýrsla forseta

Forseti ræddi um hvernig s.l. starfsár hefði tekist með tilliti til þeirrar stefnumótunar sem gerð var í upphafi starfársins.
Bar þar hæst fræðslumálin en þar hefur árangur verið vonum framar og lofaði áframhaldið mjög góðu.
Ekki hefur reyndar tekist að fjölga keppnisspilurum og í sambandi við aukna fréttaþjónustu til fjölmiðla hafi útkoman verið frekar dapurleg samkvæmt yfirliti frá Gallup. Hann sagði að Guðmundur Páll væri ráðinn þjálfari opna landsliðsflokksin fram í júní n.k. en skoða þyrfti hvað gera ætti í landsliðsmálum kvenna þar sem árangur liðsins á NM í sumar hafi ekki staðið undir væntingum. Hann skýrði síðan frá því að gerð hafi verið lokasátt og gengið frá málum varðandi göngugötuna við Þönglabakka og væri það mál endanlega úr sögunni. Jón sagði rekstur B.S.Í. fjárhagslega vera á áætlun.
Jón sagðist hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér sem forseta næsta ár.

2. Skýrsla framkvæmdastjóra

Stefanía skýrði frá því að í bókhaldinu væri allt í járnum en þó líklega réttu megin við "Núllið" þrátt fyrir samdrátt í nokkrum liðum t.d. Íslandsmótum. Hún kynnti nýja mótaskrá og sagði að allt útlit væri fyrir að húsnæði B.S.Í. yrði vel nýtt næsta vetur. Ræddi hún um hvort þörf væri á sýningatöflu í bikarúrslitum og var ákveðið að sleppa henni. Rætt var um að athuga með prufukeyrslu á sýningu í tölvu.
Sagði hún meistarastigaskrána verða senda út í vikunni og að búið væri að prufukeyra að senda meistarastigin rafrænt frá félögum til BSÍ. og hefði það gengið vel.
Einnig sagði Stefanía frá því að undanúrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni yrðu spiluð í Síðumúla 35 (salur Tannlæknafélagsins) og okkar húsnæði næsta vor.

3. Fræðslumál

Matthías skýrði frá gangi mála og upplýsti að bridgekennsla á vegum framhaldskólanna væri að fara í gang í nokkrum framhaldsskólum sem valfag til eininga og að fleiri skólar muni bætast í hópinn um áramót. Stofnað hefur verið bridgefélag Yngri spilara í samvinnu við B.R. og er það ætlað spilurum yngri en 30 ára. Framhaldsskólamótið sem haldið verður í mars verður í tengslum við bridgefélag Yngri spilara.

4. Netpanel

Matthias kynnti fyrir okkur hvað netpanel er. Það er skoðanakönnun sem gerð er á netinu og sagðist hann vera í aðstöðu til að framkvæma slíka könnun meðal bridgespilara. Til þess að þetta geti orðið þarf að safna saman netföngum sem flestra bridgespilara og skoða hvað á að kanna. Var það einlægur vilji stjórnar að nýta þetta frábæra tækifæri og ákveðið ráðast í þetta verkefni og senda út beiðni til félaganna um að safna saman netföngum félaganna.

5. Önnur mál

a) Gjaldskrá
Framkvæmdastjóra var falið að athuga hvort ekki væri rétt að hækka verðskrá á útleigu húsnæðisins reglulega og hvort hafa ætti hana í tveimur eða þremur liðum.
b) Nýliðabridge
Matthías benti á að markaðssetja þyrfti nýliðabridge betur en gert hefði verið til þessa.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 19:00



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar