Skráning á Reykjavik Bridgefestival Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Styrktarlína Bridgesambands Íslands

Vertu makker bridge á Íslandi

P1068124.jpg

Á Ísland býr lítil þjóð með stórt bridgehjarta

Við höfum unnið heimsmeistaratitil, sent landslið á Evrópu- og heimsmeistaramót áratugum saman ásamt því að byggja upp öflugt mótahald hér heima.

Til að halda því áfram þurfum við bakhjarla eins og þig.

Hvað framlagið þitt gerir

  • 🏆 Landsliðin - Við sendum opið lið, kvennalið, eldri spilara og ungmennalið á Norðurlanda-, Evrópu- og heimsmót. Ferðir, gisting og þátttökugjöld kosta sitt - þinn stuðningur kemur Íslandi að borðinu.

  • ♠ Íslandsmótin í Sveitakeppni, tvímenningur, paramót og fleira. Mótin eru hjartað í íslensku bridge og þurfa keppnisstjóra, spilagjafir, húsnæði og úrslitakerfi.

  • 🌱 Nýliðar og ungmenni. Framtíð bridge veltur á nýjum spilurum. Framlag þitt styður kennslu, byrjendamót og ungt fólk sem vill læra spilið og keppa fyrir Ísland.

  • 🤝 Félögin um land allt. Við styðjum bridgefélög með búnaði, ráðgjöf og mótahaldi svo spilað sé um allt land.