12. mars 2003
miðvikudagur, 12. mars 2003
Stjórnarfundur 12. mars 2003
Mættir á fundinn: Jón Sigurbjörnsson, Erla
Sigurjónsdóttir, Kristján Már Gunnarsson, Matthías Þorvaldsson,
Anton Haraldsson, Ísak Örn Sigurðsson og Stefanía
Skarphéðinsdóttir.
1. Skýrsla forseta.
Jón ræddi vítt og breytt um útbreiðslumálin og hvatti menn til
dáða. Hann sagði fréttaflutning af Íslandsmótum í útvarpi og
sjónvarpi nánast engan og á því þyrfti að gera bragarbót.
Rædd var framkvæmd skoðanakönnunar sem gera á í Borgarnesi. Ákveðið
að mótanefnd með aðstoð Matthíasar útbúi spurningablað.
|
2. Skýrsla framkvæmdastjóra.
Bráðabirgaðuppgjör vegna Bridgehátíðar lagt fram og er aðeins
lítilsháttar hagnaður af mótinu þrátt fyrir hagstætt gengi
dollars.
6 mánuðir eru liðnir af fjárhagsárinu og reksturinn í stórum
dráttum skv. fjárhagsáætlun, þó eru húsaleigutekjur undir
áætlun.
Enn er ófrágengið innheimtumál Framfarafélagsins í Mjódd. Stefaníu
og Jóni falið að ganga frá málinu í samráði við lögfræðing
BSÍ.
|
3. Tillögur um breytingar á
Íslandsmótum í tvímenningi og sveitakeppni.
Anton Haraldsson, formaður Laga- og keppnsireglunefndar kynnti
tillögur nefndarinnar. Tilllögurnar verða teknar fyrir á næsta
stjórnarfundi.
Varðandi reglugerð í bikarkeppninni sagði Anton það álit
nefndarinnar, að það væri á ábyrgð spilara í bikarsveitum að
tilkynna ef þeir telji sig hafa rétt til yfirsetu í 1. umferð, geri
þeir það ekki missi þeir réttinn.
|
4. Fræðslumál.
Matthías sagði mikla vinnu í gangi um allt land í skólunum.
Kennslugögn eru annaðhvort tilbúin eða í smíðum. Skrifuð verður
grein um fræðslustarfsemina til birtingar í fjölmiðlum og á
heimasíðunni.
|
5. Sumarbridge 2003.
Samþykkt að sumarbridge verði boðið út á svipuðum nótum og í
fyrra. Tilboð verða opnuð á næsta stjórnarfundi 9. apríl.
|
6. Landsliðsmál.
Opinn flokkur:
Búið er að velja landsliðið á Norðurlandamótið í Færeyjum í
sumar:
Guðmundur Páll, fyrirliði, Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Bjarni
Einarsson og Þröstur Ingimarsson.
Kvennaflokkur:
Æfingar eru vikulega, en ekki búið að velja lið.
Yngri spilarar:
Ákvörðun um þátttöku á NM í Finnlandi tekin fljótlega.
|
7. Önnur mál.
a) Silfurstigamót.
Útbúið verði staðlað form um þær reglur sem þarf að hafa í heiðri
þegarsilfurstigamót eru haldin, af gefnu tilefni vegna ábendingar
frá Sveini Rúnari.
b) Bikarkeppni fyrir óvana keppnisspilara.
Tillögu um Bikarkeppni fyrir spilara sem hafa t.d. minna en 50
meistarastig vísað til mótanefndar.
Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 19:15
|