9. apríl 2003

miðvikudagur, 9. apríl 2003

Stjórnarfundur 09. apríl 2003

Mættir á fundinn: Jón Sigurbjörnsson, Anton Haraldsson, Ísak Örn Sigurðsson, Matthías Þorvaldsson, Erla Sigurjónsdóttir, Haukur Ingason, Kristján Már Gunnarsson, Elín Jóhannsdóttir og Stefanía Skarphéðinsdóttir.

1. Skýrsla forseta

Forseti sagði frá því að drög að fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár 2003-2004 muni að öllum líkindum fylgja með næstu fundargerð. Annars væru forráðmenn framhaldsskólanna á fullu að keppa sín á milli í bridge og yrði það vonandi til að efla bridgeáhugann meðal framhaldsskólanema. Þegar hefðu ótrúlega margir nemendur MH sýnt því áhuga að taka bridge sem valfag á næsta skólaári.

2. Skýrsla framkvæmdarstjóra

Stefanía sagði frá því að úttekt á húsnæði sambandssins væri vel á veg komin og myndi trúlega ljúka fyrir páska.
Ekkert að frétta af Mjóddarmálinu, en þar er Björgvin lögfræðingur í samningum og beðið eftir tilboði.
Undirbúningur fyrir Íslandsmótið í tvímenning er í fullum gangi og verður það haldið í Fjölbrautaskólanum við Ármúla.
Stefanía skýrði einnig frá því að Bikarkeppni Norðurlanda verði haldin í maí og eru íslensku bikarmeistarnir á leið þangað. Samþykkt einróma að styrkja þá eins og gert hefur verið.
Stefanía sagði líka frá Íslandsmóti framhaldsskóla sem tekið er upp á ný og fram fer 12. apríl, en þar mætti búast við þátttöku ca 10 sveita.

3. Sumarbridge - tilboð opnuð

Tvö tilboð höfðu borist vegna sumarbridge 2003.
Annað var frá Sveini Rúnari og Guðlaugi Sveinssyni en hitt frá Matthíasi Þorvaldssyni, sem vék af fundi á meðan málið var afgreitt.
Ákveðið var að taka tilboði Sveins Rúnars og Guðlaugs, þar sem það var kr. 155.000 hærra en tilboð Matthíasar.
Með tilboði Sveins og Guðlaugs kom athugasemd vegna spilagjafar, þar sem dýrara er að fá Mitchell gjöf.

4. Íslandsmót í sveitakeppni

a) Viðhorfskönnun í Borgarnesi
Gerð var viðhorfskönnun í undanúrslitum sveitakeppninnar í Borgarnesi hvað varðar staðsetningu keppninnar og kom þar fram að fyrir höfuðborgarbúa virðist staðsetningin skipta mestu máli. Matthías lýkur vinnslu könnunarinnar og síðan verða niðurstöðurnar lagðar fyrir mótanefnd sem skilar svo áliti á næsta fundi.

b) Úrslitin
Úrslitin í sveitakeppni verða spiluð á Hótel Loftleiðum um páskana og var ákveðið að sýna sem flesta töfluleiki. Stefaníu var falið að annast þetta.

5. Breytingar á keppnisreglugerðum. Tillögur laga- og keppnisreglunefndar

a) Íslandsmótið í tvímenningi.
b) Íslandsmótið í sveitakeppni.
Lögð var fram meðfylgjandi tillaga laga- og keppnisreglunefndar (Anton Haraldsson, Jón Baldursson, Sveinn Rúnar).

Jón byrjaði á að þakka nefndinni fyrir vel unnin störf en síðan spunnust fjörlegar umræður um málin. Kom þar sterklega fram ágreiningur um hvort einhver ætti rétt á þátttöku þó hann hefði verið í efstu sætunum árið áður og bent á þá staðreynd, að í öðrum íþróttagreinum þyrfti folk alltaf að taka þátt í allri keppninni, en ekki koma beint inn í úrslitin.
Stefanía hrósaði vinnu nefndarinnar og hugmyndum á bakvið tillögurnar. Hún sagði tvímenningsmótið greinilega vera orðið þreytt mót og þar þyrfti nýja línu.

Tillaga um að liður 3.3 d) verði felldur niður og lið 3.3 b) breytt úr 20 pörum í 26
- tekin til afgreiðslu á næsta stjórnarfundi.

Tillaga um að láta bráðabirgðaákvæðið þar sem 4 efstu sveitir í hverjum riðli spili í úrslitum gilda almennt. (ekki vera bráðabirgðaákvæði)
- tekin til afgreiðslu á næsta stjórnarfundi.

6. Norðurlandasamstarf

Fundur vegna Norðurlandasamstarfs verður haldinn 10. maí n.k. Svíar eru formenn og eru með 4 tillögur sem þeir leggja fyrir á fundinum.
a) Óbreytt samstarf
b) Svíar, Danir og Norðmenn haldi NM til skiptis og hin löndin fái ferðastyrk.
c) NM verði alltaf haldin í S-Svíþjóð og verði Finnar Íslendingar og Færeyingar styrktir til mótsins.
d) Hætta áframhaldandi samstarfi.
Ákveðið að Stefanía mætti á fundinn og styðji áframhaldandi samstarf.

7. Landsliðsmál

Anton skýrði frá því að æfingar stæðu yfir af fullum krafti vegna Norðurlandamótsins bæði í opnum flokki og kvennaflokki og að búið væri að fækka pörum í kvennaflokki. Hann leggur til að ekki verði send sveit yngri spilara á NM í sumar sökum tímaleysis unglinganna. Var þetta samþykkt.

8. Fræðslumál

Erla sagði frá að æskulýðsfulltrúi Hafnarfjarðar hefði móttekið bréf frá forseta B.S.Í. Matthías og Ljósbrá eru búin að hringja í alla framhaldsskóla og er þar mikil vinna í gangi. Einnig kom fram að brýnt væri að vera í góðu sambandi við fræðslumiðstöðvarnar.

9. Önnur mál

Haukur lagði fram tillögur vegna heimasíðu, teknar fyrir á næsta fundi.
b) Ályktun barst frá B.R. vegna félagakerfisins, sem þeim þykir ekki skila sínu hlutverki til fulls, Ákveðið að athuga hvort Ólafur Steinason Bf. Selfoss gæti ekki orðið félögunum innan handar, þar sem hann notar kerfið með góðum árangri og er ánægður með það. Einnig kom fram að Matthías hefur gert heimasíðu fyrir SÁÁ í félagakerfinu og verður hún sett inn á næstu dögum.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 20.00



Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar