Undanúrslit Íslandsmótsins eru spiluð á Reykjavikt Natura núna um helgina hægt að fylgjast með stöðunni í riðlunum á heimasíðu mótsins
Öðru kvöldi af þremur er lokið í tvímenningskeppni. Guðmundur og Sigurður hafa tekið nokkra forystu en það er kallt á toppnum og munu þeir ekki vera teknir neinum vetlingatökum á lokakvöldi mótsins.
Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman á Heimalandi og lékum fjórðu og næst síðustu umferðina í Samverkstvímenningnum. Úrslitin urðu ekki eftir bókinni, ef sú bók er á annað borð til.
Í kvöld lauk fjöggura kvölda Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs með öruggum sigri sveitar Sverris Þórissonar sem fékk 191 stigi meira en Jón Steinar og hans meðreiðarsveinar.
Bridgeskólinn býður öllum 25 ára og yngri að koma á ókeypis námskeið og læra að spila bridge. Byrjað er frá grunni, ekki þarf að vera með neina þekkingu á spilinu áður en mætt er á námskeiðið.
Kauphallartvímenningur BR hefst næsta þriðjudag. Fjögurra kvölda mót (imps across the field). Vegleg verðlaun þar sem sigurvegarar fá gistingu og keppnisgjald í tvímenning og sveitakeppni á Siglufjarðarmótinu 6.-8. október.
Hrossakjótsmótið verður haldið á Hala í Suðursveit helgina 1 og 2.apríl n.k. Næg gisting og úrvals hrossakét, annað fóður fyrir þá sem ekki hugnast hrossakétið.
Þriggjakvölda tvímenningur hófst hjá félaginu á fimmtudaginn, voru þeir Guðmundur og Sigurður óstöðvandi þetta kvöld. Mótinu verður haldið áfram næstkomandi fimmtudag.
Þriðja kvöldið af fjórum í Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Geysihörð barátta er um efstu sætin en sveit Sverris Þórissonar er þó með góða forystu á Binga og feðgana sem eru í öðru sæti.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar