50 ára afmælismót Bridgefélags Hrunamanna var haldið í Félagsheimilinu að flúðum í dag. Sigurvegarar urðu Kristján Már Gunnarsson og Gunnlaugur Sævarsson með 60,6% skor.
Butler tvímenningur félgasins hélt áfram og var sótt að Höskuldi stórbónda og aðstoðarmanni hans. Stóðust þeir öll áhlaup þó að næstu menn hafi saxað heldur á forskotið.
Þrátt fyrir að tefla fram þremur varamönnum í kvöld héldu Bingi og feðgarnir forystusætinu í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs og eru með rétt rúm 10 stigum meira en sveit SFG.
Blíðviðrisdaginn 26. október 1967 kom saman galvaskur hópur bridgeáhugamanna og stofnuðu Bridgefélag Hrunamanna sem enn starfar í miklum blóma.
Sl. þriðjudagur, 7/11 2017, var sérstakur hátíðisdagur hjá okkur bridgespilurum í Rangárþingi, því þennan dag fyrir 100 árum hófst rússneska byltingin Þess var minnst víða um heim í gær, nema þá helst í Rússlandi.
Bf. Hrunamanna 50 ára Þann 11.nóvember ætlar félagið að halda afmælismót í tilefni þess Spilað verður í félagsheimilinu á Flúðum og hefst mótið kl.
Eftir tvö kvöld af þremur í Monradtvímenningi Bridgefélaga Reykjavíkur eru Páll Bergsson og Vigfús Pálsson efstir með 113,1 stig sem er samanlögð prósentuskor kvöldanna tveggja.
Eftir fyrsta kvöld af þremur eru þeir Guðmundur og Höskuldur búnir að ná sér í væna forystu. Næstir á eftir þeim eru Björn og Pálmi. Mótinu verður framhaldið næstkomandi fimmtudag og mun spilamennska venju samkvæmt stundvíslega kl.
Eftir tvö kvöld og fjórar umferðai í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs eru Bingi og feðgarnir enn efstir, nú með 69,14 stig en tvær aðrar sveitir eru með yfir 60 stig sem þýðir að efstu þrjár eru með yfir 15 stig að meðaltali.
Sl. þriðjudag lukum við Rangæingar upphitun vetrarins. Teknar voru nokkrar Mullersæfingar, teygjur og almenn frúarleikfimi. Leikin voru 33 spil í leiðinni með þátttöku 11 para.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar