ÍSLANDSMÓT Í BÖTLERTVÍMENNINGI OG SAGNKEPPNI

þriðjudagur, 28. nóvember 2006

Íslandsmót í bötlertvímenningi fer fram í húsnæði Bridgesambands Íslands laugardaginn 2. desember. Spilamennska hefst klukkan 11:00 að morgni. Spilamennsku er háttað eins og verið sé að spila í sveitakeppni, skor reiknað út í impum. Þetta mót er nýtt af nálinni og öllum opið. Skráning á síðunni og í símum 587 9360 eða 898 7162.

Skrá sig hér 

Íslandsmót í sagnkeppni, sem fram fer sunnudaginn 3. desember er alveg nýtt af nálinni. Það verður háð að Síðumúla 37 og mótstími er frá 11:00-18:00. Þátttakendur fá blöð í hendurnar með 33 spilum, vestur- og austurhendur og fá úthlutað einum og hálfum tíma til að ljúka sögnum. Hvert par fær úthlutað andstæðingi sem segir sagnir til truflunar. Ef pör ljúka ekki sögnum á settum tíma, fá þeir einkunnina 4 af 10 mögulegum fyrir ókláruð spil. Keppnisgjaldi er stillt í hóf, aðeins 1.000 krónur á parið eða 500 á spilara. Skráning á vefsíðunni og símum 587 9360 eða 898 7162.

Skrá sig hér 

spaðagosinn-strákur            spaðatía-stelpa

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar