GLÆSILEGUR SIGUR ÍSLENDINGA Á HAWAÍ

mánudagur, 27. nóvember 2006

Íslensku landsliðsspilararnir Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Sigurbjörn Haraldsson og Bjarni H. Einarsson náðu þeim glæsilega árangri að fagna sigri á Hawaí í Swiss Teams sveitakeppni sem þeir tóku þátt í. Með þeim í sveitinni voru Hjördís Eyþórsdóttir og Tony Kasday. Sveitin byrjaði ekki vel, tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum en vann sigur á sterkri sveit Lynch (Carol Lynch, Mike Passell, Eddi Wold, Dennis Dawson, Larry Cohen, David Berkowitz) 20-0 í sjöundu umferð umferð og vann síðan 17-3 sigur í síðustu umferð og tryggði sér þannig sigur. Fyrir lokaumferðina var sveit Lynch með nauma forystu en tapaði 6-14 í lokaleiknum. Sveit Íslendinganna (Kasday) endaði með 128 stig, Lynch með 118 og sveit Mahaffey með 114 stig.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar