Jólatvímenningur BK var spilaður í kvöld. Tvö pör urðu jöfn í efsta sæti, Björk og Jón og Benni og Ingi.
Sl. þriðjudag lukum við Rangæingar leik í sex kvölda Butler okkar, þar sem fjögur bestu kvöldin töldu til úrslita.
Engin náði að lauma sér uppfyrir Kristján Má og Þröst í aðaltvímenningnum sem lauk á fimmtudag. Sigruðu þeir félagar með nokkrum yfirburðum. Næsta mót er jólaeinmenningurinn, það verður tveggjakvölda einmenningur þar sem gjaldkerinn of formaðurinn lofa góðum vinningum.
Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs lauk nú í kvöld. Sveit GSE hafði tryggt sér sigurinn fyrir síðustu umferðina en sveitir Páls Þórssonar og Bingi og Feðgarnir héldu sínum verðlaunasætum sem þeir sátu í þá þegar.
Sl. þriðjudagskvöld komum við Rangæingar saman á heimavelli okkar að Heimalandi. Til leiks mættu 14 pör og léku saman fimmta kvöldið af sex í Butlertvímenningi félagsins.
Lokastaðan 1. Gabríel Gíslason og Aðalsteinn Jörgensen. 58,5% 2-3. Hrólfur Hjaltason - Oddur Hjaltason. 55,3% 2-3. Egill Darri Brynjólfsson - Ari Konráðsson.
Aðaltvímenningi félagsins var framhaldið á fimmtudag, sviptingar urðu á toppnum. Kristján Mór fékk suðurnesjamann lánaðan og skilaði það sér í fínu skori og tilltu þeir sér á toppinn.
Efttir 12 umferðir af þrettán í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs er sveit GSE úr Hafnarfirði búin að tryggja sér sigur í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs.
Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman til hefðbundinna þriðjudagsverka. Komið var að fjórða kvöldi af sex í Butlertvímenningi félagsins.
Minni á sveitakeppni Bridgefélag Hafnarfjarðar sem hefst næsta mánudag 28.
Aðaltvímenningur félagsin hófst á s.l. fimmtudag með þátttöku 12 para. Það stefnir í æsispennandi keppni þar sem nokkuð jafnt er á toppnum. Stórbændurnir Magnús og Gísli hrifsuðu til sín efstasætinu í síðustu umferðinni.
Sl. þriðjudagskvöld vorum við Rangæingar fluttir hreppaflutningum niður í A-Landeyjar, nánar tiltekið í félagsheimilið Gunnarshólma, þar sem heimavöllur okkar að Heimalandi var upptekinn af einhverjum ástæðum.
Svala Pálsdóttir og Aðalsteinn Jörgensen unnu einskvölds Butler tvímenning hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar mánudaginn 21. nóvember. Hrund Einarsdóttir og Dröfn Guðmundsdóttir enduðu í 2. sæti og Bjarni Hjarðar og Gunnar Róbertsson enduðu í 3ja sæti.
Jafnt var á toppnum í butlertvímenningi félagsins sem lauk síðastliðinn fimmtudag. Björn og Eyþór voru efstir ásamt þeim Kristjáni og Þresti. Þar sem jafnaðarmennska er í hávegum höfð hjá félaginu þá verður ekki beitt reiknikúnstum við að úrskurða sigurvegara heldur deila þeir félagar efsta sætnu bróðurlega.
Þegar Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs er rétt rúmlega hálfnuð er sveit GSE úr Hafnarfirði komin með nokkuð afgerandi forystu, eða 31 stigi meira en Bingi og feðgarnir.
Í kvöld mættu 24 pör í miðvikudagsklúbbnum og urðu Hanes Sigurðsson og Helgi Tómssn efstir með 60,9% HEIMASÍÐAN
Sl. þriðjudag settumst við Rangæingar að spilum á Heimalandi að vanda. Lékum þar 2. kvöld af 6 í Butlertvímenningi vetrarins þar sem 4 bestu kvöldin munu telja til úrslita.
Eyþór og Björn tilltu sér í efsta sætið í butler tvímenning. Eru þeir félagar með nokkuð góða forystu. En það verður sótt hart að þeim á lokakvöldinu sem spilað verður næstkomandi fimmtudag.
Tuttugu og átta pör mættu til að spila hina ýmsu samninga í Miðvikudagsklúbbnum í kvöld. Samkvæmt vandlegri talningu keppnisstjóra voru spilaðir 91 NO TRUMP samningar en 301 TRUMP samningar.
Sl. þriðjudag hófum við Rangæingar leik í sex kvölda BUTLER með þátttöku 13 para.
Skógabóndinn hægláti og Moldnúpsvertinn hafa verið á mikilli siglingu undanfarið, einkum eftir að bóndinn lauk við að smala saman sauðum sínum.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar