Rangæingar -- Björninn beitti

miðvikudagur, 1. mars 2017

Sl. þriðjudag komum við Rangæingar saman á Heimalandi til að hefja leik í 5 kvölda aðaltvímenning félagsins, Samverkstvímenningnum, þar sem 4 bestu kvöldin af 5 telja til úrslita. 

Ekki var vandalaust að hefja leik, spilagjöfin klikkaði en til happs vildi að til eru nokkrir spilastokkar í félaginu og enn finnast menn sem kunna að skipta 52 spilum í fjóra jafna hluta.    Þeim fer þó ört fækkandi, enda koma spilin núorðið sjálfkrafa á borðin, með storkinum að talið er.   Þá stóð til að vera með votverðlaun þetta kvöld, svona til að skola niður sveitakeppnisrykinu, sem vill setjast í hálsinn.   Ekki tókst betur til en svo að skrásetjari, sem átti að sjá um verðlaunainnkaupin, gleymdi þeim.   Það kemur þó fæstum á óvart, enda spilastjóri lítt ölkær sjálfur og hefur t.a.m. ekki smakkað dropa síðan í gærkvöldi.   

En til leiks mættu 14 pör.  Björninn beitti mætti með Eyþór Árnesing til leiks og áttu þeir félagar huggulega kvöldstund saman. lönduðu 64,7% skori.   Þeir höfðu Sillu okkar undir en hún leiddi þó Kanastaðakempuna hæverkslega upp í 2. sætið með 59,0% skor, með dyggri aðstoð spilastjórans sem fór heim með spaðaásinn og er enn með hann á sér.  Þriðju urðu svo harðlínukommúnistarnir Svavar og Ægir með 57,1% skor, sem að sovéskri fyrirmynd létu aðra hafa minna.

Næst verður sko votverðlaunakeppni, ef gjaldkerinn lofar, en hann er fastheldinn á aurinn þessa dagana, enda hópurinn að fara til Hamborgar sumardaginn fyrsta með tilheyrandi fjárútlátum.   Þar munum við leika við þarlenda, samhliða almennum skemmtilegheitum.  Ólíklegt er öl verði haft um hönd, líklegra er að það verði haft innvortis.  

Úrslitin og skorið má sjá hér en sem betur fer er spilagjöfin sjálf ekki þarna, væri líka háðuglegt fyrir spaðaásseigandann.   Sá hefði nú mátt fara til betri verka en liggja í vasa skrásetjara.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar