Hér er slóð áKjördæmamótið á Gamla mátann svo kallaða og þar er hægt að sjá heildarstöðu kjördæmanna.
Eiður Mar Júlíusson er bronsstigameistari Bridgefélags Kópavogs veturinn 2025-2026. Þeir félagar í Brauð & co sveitinni skipa sér í 4 af 5 efstu sætin og einungis Hermann Friðriksson sem kemst upp á milli þeirra í topp fimm.
Rúnar Einarsson er bronsstigameistari Bridgefélags Reykjavíkur veturinn 2025-2026. Hægt að skoða öll bronsstig vetrarins hér.
Hrossakjötsmótið á Hala Í Suðursveit var spilað nú um helgina og eru silfurstigin komin á heimasíðu Bridgefélags Hornarfjarðar. Silfurstigin-2026.
Hér kemur listi yfir skráð pör á Hrossakjötsmótið á Hala í Suðursveit sem fer fram helgina 11-12 apríl. Helgin byrjar á föstudagskvöldinu 10. apríl með hinu geysivinsæla Bjórmóti sem hefst u.
Fólk er byrjað að spyrja út í Undanúrslitin sem verða spiluð helgina 27-29 mars. Formið á þeim er það sama ár eftir ár, spilaðar 12 umferðir með 12 spila leikjum og tímaplanið það sama og áður.
Hér kemur gullstigablað eftir Íslandsmót kvenna í sveitakeppni. Tvö gullstig eru til skiptanna í hverjum leik en ég setti ekki inn uppbótarstigin. Læt Matta um það.
Nú liggur fyrir að Rúnar Einarsson og Guðjón Sigurjónsson hafa unnið sér inn flest bronsstig hjá BR í vetur. Alls hafa 140 spilarar fengið bronsstig í vetur en athygli vekur að þar af hafa aðeins 64 fengið stig bæði fyrir og eftir áramót en 76 einungis annað hvort fyrir eða eftir áramót.
Meðlimir sveitarinnar Brauð & co raða sér í efstu sætin yfir flest bronsstigin í BK það sem af er vetri 2025-2026. Bernódus Kristinsson hefur þó þann hæfileika að geta spilað við ýmsa makkera því hann vann sér inn þónokkur stig á meðan hans fasti makker var erlendis við aðra iðju en að spila bridds.
Silfurstigin fyrir Reykjanesmótið í sveitakeppni eru komin á heimasíðu Bridgesambands Reykjaness.
Tólf sveitir skráðar í Reykjanesmótið í sveitakeppni sem er spilað í Hraunseli, Flatahrauni 3 Hafnarfirði á morgun.Tímatafla lýtur svona úr. Reynum að vera búin um korter yfir sex.
Júlíus Snorrason og Eiður Mar Júlíusson hafa safnað flestum bronsstigum hjá BK það sem af er ári 2026.bronsstigin-2026-vor.
Bronsstigin fyrir Nýárssveitakeppni BR eru komin á heimasíðuna. Þar eru þrír Kjöríssmenn fremstir meðal jafningja.
Silfurstigin fyrir Reykjavíkurmótið í sveitakeppni eru komin á heimasíðu Bridgesambands Reykjavíkur.silfurstig-2026.pdfMótið á gamla mátann.
Reykjavíkurmótið í sveitakeppni er spilað á morgun frá kl. 10:00 - 18:40. Þrettán sveitir skráðar á þessari stundu og einhver von um þá fjórtándu. Spilaðar verða 7 umferðir monrad með 9 spila leikjum.
Silfurstigin fyrir Suðurlandsmótið eru komin á heimasíðu Bridgesambands Suðurlands.silfurstig-svk-2026.
Búið er að loka fyrir skráningu í Suðurlandsmótið í sveitakeppni. Mótið er spilað 09-10 janúar (föstudagskvöld og laugardag) í sal Karlakórs Selfoss að Eyrarvegi 67. 12 sveitir og spilaðar 11 umferðir með 8 spila leikjum.
Silfurstigin fyrir Vesturlandsmótið eru komin á heimasíðu Bridgesambands Vesturlands.silfurstig-2026.
Jólamót BR var spilað þann 30. desember eins og venjan er. Hér eru silfurstigin.jólamór-br-2025-silfur.
Silfurstigin fyrir Jólamót BH eru komin á heimasíðu félagsins. Sextán pör fá stig.jólamót-bh-2025-silfurstig.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar