Þriðja kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld og hefur staðan á toppnum jafnast mikið og nú eru forystusauðirnir Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson með aðeins 56,1% skor.
Eftir að hafa samtals spilað 25 spil við hinar 6 sveitirnar í 30 leikjum urðu Akureyrarmeistarar með yfirburðum sveit Old Boys. Þeir voru með 19,4 stig að meðatali í leik! Í sveitinni spiluðu Pétur Guðjónsson, Stefán Ragnarsson, Sveinn Pálsson, Jónas Róbertsson og Grettir Frímannsson.
Þriðjudaginn 12. febrúar var spiluð 5. umferð af 7 í sveitakeppni félagsins.
Þétt er á toppnum hjá BR. Helgi Jónsson og Helgi Sigurðsson hafa forystu þegar mótið er hálfnað.
Halldór Þorvaldsson og Magnús Sverrisson eru efstir eftir 1. kvöld í Aðaltvímenning BH 2013. Þeir eru með 62,3% og í 2. sæti eru Svala Pálsdóttir og Garðar Garðarsson með 61,8%.
Stöðuna í Butler, eftir 4 kvöld má sjá hér
Reykjanesmótið í sveitakeppni fór fram nú um helgina að Gullsmára 13 í Kópavogi. Tíu sveitir keppu um sjö sæti í Undanúrslitum Íslandsmótsins auk þess sem Reykjanes á fyrstu varasveit sem fyllir upp í sætið sm Reykjavík notaði ekki.
Suðurlandsmótið í sveitakeppni var spilað í Tryggvaskála á Selfossi nú um helgina. Átta sveitir tóku þátt í mótinu, og var keppnisstjóri Vigfús Pálsson.
Reykjanesmótið í sveitakeppni fer fram nú um helgina í Gullsmára 13 í Kópavogi. Tíu sveitir keppa um sjö sæti í Undanúrslitum Íslandsmótsins sem spiluð verða helgina 8-10 mars.
Þegar búið er að spila tvö kvöld af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs hafa Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson forystu með 60,1% skor og hafa hátt í þriggja prósenta forskot á Hjördísi Sigurjónsdóttur og Kristján Blöndal.
Reykjanesmótið í sveitakeppni fer fram helgina 9-10 febrúar í Gullsmára, félagsheimili aldraðra, beint vestur af Smáralind (sami spilastaður og á afmælismóti BK).
Þá er lokið 4 kvöldum af 5 í Akureyrarmótinu í sveitakeppni en það er í ár spilað með stuttum leikjum svo ekki yrði yfirseta. Sveit Old Boys bætir enn í á toppnum og hefur fengið hæsta skor öll kvöldin og er langefst.
Þriðjudaginn 4. febrúar var spiluð 4ða umferð í sveitakeppni félagsins. Eftir 4 umferðir af 7 eru Jói og jólasveinarnir orðnir efstir með 74 stig.
BÓ var með 232 stig í 11 umferðum sem er rúmlega 20 stig í leik. Sveitir Gabríels Gíslasonar og Svölu Pálsdóttir voru jafnar í 2. sæti með 192 stig.
Bridgesamband Suðurlands heldur Suðurlandsmótið í sveitakeppni helgina 9. - 10. febrúar 2013. Spilamennska hefst kl. 10:00 báða dagana. Spilað verður um 4 sæti á Íslandsmóti, auk Suðurlandsmeistaratitilsins.
Guðjón Einarsson og Vilhjálmur stóðu uppi sem sigurvegarar í þriggjakvölda butler sem lauk fimmtudaginn 31.janúar. Næsta mót félagsins er sveitakeppni, þar sem Garðar formaður skipar mönnum í sveitir og sér til þess að menn mæti.
Aðaltvímenningur Bridgefélags Kópavogs hófst í kvöld þegar spilað var fyrsta kvöldið af fjórum. Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson náðu flgúgandi starti því þeir eru með 70% skor eftir fimm umferðir af 23 í mótinu öllu.
Þriðjudaginn 29. janúar var spiluð 3ja umferð í sveitakeppni félagsins. Til leiks eru mættar 8 sveitir og eftir 3 umferðir eru 3 sveitir efstar og jafnar með 55 stig.
Aðaltvímenningur Bridgefélags Kóopavogs hefst kl. 19:00 í kvöld. Þeir sem ekki hafa skráð sig fyrirfram eru beðnir um að mæta tímanlega í kvöld og skrá sig þannig að vel gangi að byrja mótið.
Guðrún Jörgensen og Björn Arnarson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með glæsilegu skori, 64,3%. Næst voru Soffía Daníelsdóttir og Óli Björn Gunnarsson með 57,9% og í 3ja sæti voru Ásgeir Yngvi Jónsson og Siguðrur G.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar