Gísli og Leifur enn í forystu í Kópavogi

fimmtudagur, 14. febrúar 2013

Þriðja kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld og hefur staðan á toppnum jafnast mikið og nú eru forystusauðirnir Gísli Tryggvason og Leifur Kristjánsson með aðeins 56,1% skor. Í kvöld náðu Jón Páll og Guðmundur besta skorinu með 62,3%  og Heimir og Árni Már voru með 61,1%. Öll úrslit má sjá á heimasíðu Bridgefélags Kóavogs.

Keppninni lýkur næsta fimmtudag en þann 28 febrúar hefst svo hraðsveitakeppni.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar