Akureyrarmeistarar í sveitakeppni 2012!

miðvikudagur, 13. febrúar 2013

Eftir að hafa samtals spilað 25 spil við hinar 6 sveitirnar í 30 leikjum urðu Akureyrarmeistarar með yfirburðum sveit Old Boys. Þeir voru með 19,4 stig að meðatali í leik! Í sveitinni spiluðu Pétur Guðjónsson, Stefán Ragnarsson, Sveinn Pálsson, Jónas Róbertsson og Grettir Frímannsson.

Í 2.sæti varð sveit Frímanns Stefánssonar (16,1 stig að meðaltali) og í 3. sveit Stefáns Vilhjálmssonar (14,9 stig að meðaltali).

Heildarstaðan og spilin eru hér

Næsta mót hefst þriðjudaginn 19.febrúar og er 3ja kvölda Góutvímenningur svo sjáumst þá!

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar