Nú hallar vetri og lítið eftir ógert þennan veturinn nema spila um nokkur páskaegg nk. þriðjudagskvöld, ljúka svo hefðbundnu starfsári síðasta vetrardag með lúðrablæstri, glaum og gleði, og loks halda lítið afmælismót í byrjun maí í tilefni af níræðisafmæli okkar góða vinar og félaga Ólafs Ólafssonar, fyrrv.
Eftir yfir 60% skor bæði kvöldin varð Stefán Vilhjálmsson einmenningsmeistari B.A. 2014 og Stefán Sveinbjörnsson kom þar á eftir. Glæsilegt það. Sjá lokastöðu og spilin hér Næsta mót er síðasta stóra mót vetrarins en það verður þriggja kvölda impatvímenningur þar sem einnig er dregið í sveitir.
Stjórnarfundur í Bridgesambandi Íslands12. mars 2014 Mættir: Jafet, Ólöf, Helga, Guðný, Garðar, Ingimundur, Guðmundur og Árni Már 1. Fundargerð síðasta fundar samþykkt 2. Skipun í nefndir Búið er að skipa í nefndir BSÍ sjá meðfylgjandi yfirlit.
Hið árlega Páskamót Bridgefélags Hafnarfjarðar verður haldið á föstudeginum langa þann 18.04.2014 og hefst klukkan 17:00 tímalega.
Hið árlega Halamót fór fram að Hala í Suðursveit helgina 5-6 apríl. Spilaður var barómeter, allir við alla, þrjú spil í umferð og mættu 23 pör til leiks.
Nú er lokið íslandsbankatvímenning Briddsfélags Selfoss. Öruggir sigurvegarar voru þau Kristján Már og Ólöf. Á eftir þeiim komu svo Anton og Pétur.
Gísli Steingrímsson og Gabríel Gíslason tóku afgerandi forystu í þriggja kvölda Butler-tvímenningi Bridgefélags Kópavogs þegar annað kvöldið í keppninni var spilað nú í kvöld.
Það var eins kvöld tvímenningur síðasta fimmtudag en næst hefst tveggja til þriggja kvölda hraðsveitakeppni. Úrslit frá síðasta kvöldi er hér.
Framsóknarmenn hér í Rangárþingi eystra, sem eru auðvitað fjölmargir eins og menn vita, hafa nú raðað upp á framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.
Spiluð hafa verið 2 kvöld af þremur í Íslandsbankabarómeter Briddsfélags Selfoss. Þó nokkrar breytingar urðu á toppnum.
Spilað var á 9 borðum og mikil stemning - sjá má úrslit og öll spil hér, myndir væntanlegar. Sjá einnig heimasíðuna á Facebook... https://www.
Fyrsta kvöldið í þriggja kvölda Butler-tvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Feðgarnir Gísli Steingrímsson og Gabríel Gíslason hafa 17 impa forystu á næstu tvö pör sem eru nánast jöfn í 2-3 sæti.
Sl. þriðjudag kom að vanda saman fríður hópur fólks til að leika sér í 3. umferð í Samverkstvímenningsins. Gylfi Sigurðsson fór mikinn í liði Tottenham sl.
Eftir jafnan og góðan árangur í 3 kvöld endaði sveit Stefáns Vilhjálmssonar á toppnum. Með honum spiluðu Haukur Harðarson, Grétar Örlygsson, Örlygur Örlygsson og Haukur Jónsson.
Fimmtudaginn 27 mars hefst þriggja kvölda Butler-tvímenningur hjá Bridgefélagi Kópavogs. Spilað er í Gjábakka, Fannborg 8 og byrjað kl. 19:00. Vinsamlegast mæta fyrir kl.
26 pör tóku þátt í Valsmótinu og eftir harða baráttu við KR-inga og aðrar vættir þá sigruður Valsmennirnir Brynjar Níelsson og Guðmundur Ágústsson með góðum endaspretti.
Búið er að spila 1 kvöld af 3 í Íslandsbankatvímenningnum. Það mættu til leiks 12 pör og eru Björn Snorrason og Gunnar Þórðarson efstir með +29. Í öðru sæti eru Össur Friðgeirsson og Karl Þ.
Fjórða og síðasta kvöldið í Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í gær. Keppnin var æsispennandi fram á síðasta spil og endaði með því að sveit Börns Halldórssonar sigraði með aðeins sex stiga mun.
Garðar Garðarsson og Svavar Jenssen sigruðu meistaratvímenning 2014. Spiluð voru 4 stök kvöld sem voru lögð saman og báru þeir félagar af. Í öðru sæti urðu þeir Gunnar Guðbjörnsson og Garðar Þór Garðarsson og þriðju þeir Dagur Ingimundarson og Bjarki Dagsson en Jóhann Benediktsson spilaði fyrir Bjarka síðasta kvöldið.
Sl. þriðjudagskvöld var 2. umferð í Samverkstvímenningum leikin. Prestakallarnir fóru rólega af stað, svo rólega að þeir lentu á neyðarfundi inni í kaffistofu í 3ju umferð.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar