Fréttir - 2012 - 12
Gleðileg jól
Bridgesamband Íslands sendir öllum spilurum nær og fjær og fjölskyldum þeirra bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár - Sjáumst hress og kát við græna borðið 2013
Páll Valdimarsson og Kristján Blöndal Íslndsmeistarar í Butler-tvímenningi
Íslandsmótið í Butler-tvímenningi var fór fram laugardaginn 08 desember og mættu 19 pör til leiks. Íslandsmeistarar urðu Páll Valdimarsson og Kristján Blöndal með 77,1 impa.
Hrund Einarsdóttir og Ásgeir Ásbjörnsson Íslandsmeistar í sagnakeppni
Íslansmótið í Sagnkeppni var hadið föstudaginn 07 desember með þátttöku 12 para. Melduð voru 30 spil á 90 mínútum. Hrund Einarsdóttir og Ásgeir Ásbjörnsson sigruðu með 201 stig og í öðru sæti urðu Halldór Svanbergsson og Kristinn Kristinsson með 182 stig og í þriðja sæti Ómar Freyr Ómarsson og Örvar Óskarsson með 180 stig.
Íslandsmót í Bötlertvímenning
Skráning er hafin í Íslandsmótið í Butlertvímenning sem fer fram laugardaginn 8.desember spilamennska hefst kl. 11:00 og verður spilað í Síðumúla 37 Vegna misskilnings, er skráningu ekki lokið.
Íslandsmót í sagnkeppni
Íslandsmótið í sagnkeppni fer fram föstudaginn 7.desember kl. 19:15. Mótið hefst kl. 19:30 og lýkur kl.
Guðbrandur og Friðþjófur Íslandsmeistarar eldri spilara 2012
Guðbrandur Sigurbergsson og Friðþjófur Einarsson urðu Íslandsmeistarar eldri spilara í tvímenning 2012. Þeir enduðu rúmum 7 stigum á undan Sigtryggi Sigurðssyni og Hrólfi Hjaltasyni sem áttu titil að verja.