Dagana 14.-15.janúar fór fram Svæðamót Norðurlands eysta í sveitakeppni þar sem 6 sveitir kepptu um 4 sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni 2012. Baráttan var hörð en sveit Stefáns Vilhjálmssonar leiddi lengst af og vann mótið en með honum léku Örlygur Már Örlygsson, Haukur Harðarson og Grétar Örlygsson.
Tryggingarmiðstöðin varð Suðurlandsmeistari 2012 með 115 stig 23 stig að meðaltali í leik. Í öðru sæti varð sveitin Keppnisstjórasveitin og í þriðja sæti sveit MS.
Fimmtudaginn 12. janúar hófst þriggja kvölda tvímenningur hjá Briddsfélagi Selfoss.
Gang mótsins eftir fyrri dag má sjá hér
Dagsetning: 14.1.2012 - Staðsetning: Flatahraun 3, Hafnarfirði Reykjanesmótið í sveitakeppni verður haldið dagan 14-15.
Jörundur Þórðarson tók forystuna í Janúar-Monrad Bridgefélags Kóopavogs í gærkvöldi. Hann hefur stuðst við þrjá makkera fyrstu tvö kvöldin en faðir hans Þórður Jörundsson studdist hinsvegar við tvær hækjur þegar hann gekk í salinn í gærkvöldi en spilaði engu að síður eins og herforingi.
Dagsetning: 14.1.2012 - Staðsetning: Flatahraun 3, Hafnarfirði Reykjanesmótið í sveitakeppni verður haldið dagan 14-15.janúar 2012 Spilað verður í Flatahrauni 3, Hafnarfirði Uppl.
Úrtökumót BSA í sveitakeppni var haldið á Egilsstöðum 7.-8. janúar 2012. Þátt tóku 4 sveitir og spiluðu tvöfalda umferð um 2 sæti Austurlands á íslandsmótinu í sveitakeppni.
Bjarni Einarsson verður með fyrirlestur kl 18 í kvöld þar sem hann ræðir um yfirfærslur eftir 1 lauf.
Borgarnesmeistarar í Sveitakeppni 2012 er Sveit Sparisjóðs Siglufjarðar. Í sveitinni spiluðu Jón Baldursson, Þorlákur Jónsson, Steinar Jónsson og Sverrir Ármannsson.
Þeir Sigurður Skagfjörð og Torfi Jónsson sigruðu HSK tvímenning sem haldin var í Tryggvaskála fimmtudagskvöldið 5. janúar. Í öðru sæti urðu Garðar Garðarsson og Gunnar Þórðason og í þriðja sæti með jafn mörg stig en töpuðu innibirðis viðureign voru þeir Kristján Már og Helgi Grétar.
Fyrsta kvöldið af Þremur í Janúar-Monrad Bridgefélags Koopavogs var spilað í gærkvöldi. Sigurður Sigurjónsson og Ragnar Björnsson náðu þá besta skorinu með 279 stig og 62,3% skor.
Halldóra Magnúsdóttir og Þórir Sigursteinsson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með 62,9%. Í 2. sæti voru Jón Bjarki Stefánsson og Guðlaugur Sveinsson með 61,2%.
Hið bráðskemmtilega bridgeár 2012 hefst hjá Bridgefélagi Kópvogs með bráðskemmtilegum þriggja kvölda Monrad-barómeter í kvöld. Spilaðar eru 7 umferðir með 4 spilum eða 28 spil á kvöldi.
Júlíus og Sveinn leiða Aðaltvímenning BR 2012. Staðan er þessi...
hérna má sjá dagskrá BH fram á vor
Reykjavíkurmót í sveitakeppni 2011 Búið er að ákveða spiladaga fyrir Reykjavíkurmótið í sveitakeppni 2012. Föstudagur 10. febrúar: 2 umferðir Laugardagur 11. febrúar: 4 umferðir Sunnudagur 12. febrúar: 3 umferðir Þriðjudagur 14. febrúar: 2 umferðir Þriðjudagur 21. janúar: 2 umferðir Þriðjudagur 28. febrúar: 2 umferðir Þessi dagskrá miðast við 16 sveitir.
Aðaltvímenningur Bridgefélags Reykjavíkur hefst annað kvöld, þriðjudaginn 3. janúar. Reykjavíkurmótið í sveitakeppni fer fram í febrúar að þessu sinni og hefst helgina 10-12. febrúar(nánari dagskrá síðar) Sjá vordagskrána hér: http://bridge.
HSK mótið í tvímenning verður spilað í Tryggvaskála fimmtudaginn 5. janúar. Byrjað verður að spila kl 18:00. Spiluð verða 42-44 spil og verður spilað um silfurstig.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar