Tryggingamiðstöðin Suðurlandsmeistarar í sveitakeppni

sunnudagur, 15. janúar 2012

Tryggingarmiðstöðin varð Suðurlandsmeistari 2012 með 115 stig 23 stig að meðaltali í leik. Í öðru sæti varð sveitin Keppnisstjórasveitin og í þriðja sæti sveit MS. Í sigursveitinni spiluðu þeir Kristján Már Gunnarsson, Helgi Grétar Helgason, Björn Snorrason, Guðmundur Þór Gunnarsson, Þröstur Árnason og Sigurður Vilhjálmsson. Keppnisstjórasveitin keppti ekki um réttinn til að spila á Íslandsmótinu í Sveitakeppni, en auk Tryggingamiðstöðvarinnar og MS þá unnu sér rétt til að spila þar: Skýjaborgin, Tölvustoð og Súperlagnir.  Finna má allt um mótið á þessari síðu.

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar