Eftir tvö kvöld af fjórum í Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs er sveit Sverris sterka efst með 1044 stig en næstu sveitir eru með 1014 og 1016 stig.
Stefán Sigurðsson og Elías Einarsson unnu með 64,8%. Jón Óskar Carlsson og Karl Ómar Jónsson voru í 2. sæti með 60,2% og í 3ja sæti voru Hermann Friðriksson og Ingólfur Hlynsson.
Spilastjóri má vart mæla enn, slík var spennan í síðustu umferð sveitakeppninnar hjá okkur Rangæingum. Eins og menn muna, alla vega þeir minnugri, gátu 5 sveitir af 8 unnið sveitakeppnina þegar síðasta umferðin hófst.
Röð þriggja efstu sveita breyttist ekki á fjórða kvöldi aðalsveitakeppninnar. JE Skjanni heldur efsta sætinu og Kvika og Garðsapótek koma þar á eftir.
Lokastaðan
Gunnar Björn heldur góðri forystu þegar þremur kvöldum af fjórum er lokið í aðalsveitakeppninni. Mótinu lýkur næstkomandi fimmtudag og verður hart sótt að þeim.
Fyrsta kvöldið af fjórum í hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld.
Enn æsast leikar í sveitakeppni félagsins og muna menn vart aðra eins spennu. Einstaka kona telur sig þó muna eftir ámóta spennu í sínu ungdæmi og þá helst á hernámsárunum þegar borðalagðir dátar spígsporuðu um íslenska grund, einhverjum sprundum landsins til gleði en sauðskinnskóuðum ýtum flestum til ama.
Næsta fimmtudag, 25 feb. hefst fjögurra kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi Kópavogs. Skráning er hjá Jörundi s. 699-1176 og thorduring@gmail.
BRIDDSMÓT VALS 2016 Briddsmót VALS verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands Síðumúla 37, 3. Hæð fimmtudaginn 3.3.2016 klukkan 19.30 Þátttakendur sem vilja skrá sig rafrænt sendi tölvupóst á póstfangið: sigtryggurj@simnet.
Reykjanesmótið í sveitakeppni 2016 var spilað nú um helgina. Átta sveitir tóku þátt, þar af ein gestasveit, þannig að sjö sveitir kepptu um sex sæti í undanúrslitum Íslandsmótsins 2016. Sveit Sverris Þórissonar sigraði í svæðakeppninni en sveit Vélasölunnar sem varð í öðru dæti er hinsvegar Reykjanesmeistari þar sem efsta sveitin var skipuð spilurum utan Reykjaness.
Aðalsveita keppnin hélt áfram síðast liðið fimmtudagskvöld. Engin breyting var á toppsætinu þó að Brynjólfur og félagar hafi sótt fast að Gunnari Birni.
Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld. Spilaður var þriggja kvölda barómeter og eftir harða baráttu stóðu Gísli Tryggvason og leifur Kristjánsson uppi sem sigurvegarar.
32 pör spiluðu tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum. Guðmundur Sigursteinsson og Björn Árnason voru í miklu stuði og unnu kvödið með 67,7%. Í 2. sæti voru Halldór Már Sverrisson og Hermann Friðriksson með 61,2% og í 3ja sæti enduðu Guðrún Jörgensen og Garðar Valur Jónsson.
Reykjanesmótið í sveitakeppni fer fram helgina 20-21 febrúar 2016. Spilamennska hefst kl. 11.00 á laugardeginum en kl. 10 á sunnudeginum. Keppt verður um sex sæti í Undanúrslitum Íslandsmótsins sem verða haldin 8-10 apríl.
Enn takast menn og konur á við spilaborðið á Heimalandi, heimavelli okkar Rangæinga. Sl. þriðjudagskvöld var leikin 5. umferð af 7 í sveitakeppni félagsins.
Vesturlandsmót í sveitakeppni: úrslit.
Þriggja kvölda hraðsveitakeppni Bridgefélags Hafnarfjarðar hefst mánudagskvöldið 15.02.2016. Skráning á staðnum. Stjórnin.
Aðalsveitakeppni félagsins hófst í gær með þátttöku 5 sveita. Lang efstir eftir fyrsta kvöldið eru þeir Björn, Gunnar Björn, Magnús og Pálmi. Mótið er 4 kvöld svo menn hafa tíma til að koma sér í gang.
Annað kvöldið af þremur í Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Öll úrslit hér.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar