miðvikudagur, 29. mars 2017
Rangæingar -- Listerinn gamli hrökk loks í gang
Sl. þriðjudag lukum við Rangæingar leik í Samverkstvímenningnum
og höfðum þá ríslað okkur við það í ein fimm kvöld. 14 pör
mættu til leiks. Heldur höfðu gömlu dísilvélarnar hökt
undanfarið, einhverjar gangtruflanir gert vart við sig en nú
hrökk gamli Listerinn í gang og gekk þýðlega þetta kvöldið, því
góðtemplararnir Sigurður og Torfi unnu kvöldið nokkuð örugglega með
64,1% skor og þar með Samverkstvímenninginn, þar sem Bjorn
stórtemplar frá Húsavík náði sér ekki á strik þetta kvöldið, enda
Eyþórslaus og lauk leik á innan við 50% skori.