Ranægingar -- Heimtur

miðvikudagur, 25. október 2017

Rangæskir spilarar hafa verið að safnast að spilaborðinu sl. vikur.  Heimtur í fyrstu leitum voru með minnsta móti en síðan hafa heldur fleiri týnst í hús.   Spilarar komu flestir vænir af fjalli og meðalfallþungi í stólana all nokkru meiri en í fyrra.

Sl. þriðjudag mættu 11 pör til leiks og léku 33 spil.    Fisksalinn fimi stökk í fyrsta sætið, algjörlega án atrennu, og endaði með 60,0% skor. Slíkt hástökk kom mönnum, og jafnvel einstaka konu, vissulega nokkuð á óvart enda er fisksalinn fráleitt hástökkslegur að vallarsýn.  Skýringin liggur hins vegar í því að hestahirðirinn, sem nýverið varð jafnframt lyfsali, er lipur, flinkur og fótfrár.   Næstir í mark urðu Miðflokksmennirnir Sigurður og Torfi með 59,6% skor og jafnir í 3. og 4. sæti urðu maltunnendurnir Siggi og Sigurjón með 55,8% skor, eins og harðlínukommarnir Garðar og Bjössi. 

Þetta kvöld var fjórða upphitunarkvöld vetrarins og eitt slíkt eftir.   Að því loknu tekur við ölkvöld, barometer með verðlaunum í öllum mögulegum og ómögulegum flokkum.   Að því loknu byrjar svo 5 kvölda Butler.

Úrslit og spil má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar