Reykjanesmótið í sveitakeppni fer fram helgina 9-10 febrúar í Gullsmára, félagsheimili aldraðra, beint vestur af Smáralind (sami spilastaður og á afmælismóti BK).
Þá er lokið 4 kvöldum af 5 í Akureyrarmótinu í sveitakeppni en það er í ár spilað með stuttum leikjum svo ekki yrði yfirseta. Sveit Old Boys bætir enn í á toppnum og hefur fengið hæsta skor öll kvöldin og er langefst.
Þriðjudaginn 4. febrúar var spiluð 4ða umferð í sveitakeppni félagsins. Eftir 4 umferðir af 7 eru Jói og jólasveinarnir orðnir efstir með 74 stig.
BÓ var með 232 stig í 11 umferðum sem er rúmlega 20 stig í leik. Sveitir Gabríels Gíslasonar og Svölu Pálsdóttir voru jafnar í 2. sæti með 192 stig.
Bridgesamband Suðurlands heldur Suðurlandsmótið í sveitakeppni helgina 9. - 10. febrúar 2013. Spilamennska hefst kl. 10:00 báða dagana. Spilað verður um 4 sæti á Íslandsmóti, auk Suðurlandsmeistaratitilsins.
Guðjón Einarsson og Vilhjálmur stóðu uppi sem sigurvegarar í þriggjakvölda butler sem lauk fimmtudaginn 31.janúar. Næsta mót félagsins er sveitakeppni, þar sem Garðar formaður skipar mönnum í sveitir og sér til þess að menn mæti.
Aðaltvímenningur Bridgefélags Kópavogs hófst í kvöld þegar spilað var fyrsta kvöldið af fjórum. Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson náðu flgúgandi starti því þeir eru með 70% skor eftir fimm umferðir af 23 í mótinu öllu.
Þriðjudaginn 29. janúar var spiluð 3ja umferð í sveitakeppni félagsins. Til leiks eru mættar 8 sveitir og eftir 3 umferðir eru 3 sveitir efstar og jafnar með 55 stig.
Aðaltvímenningur Bridgefélags Kóopavogs hefst kl. 19:00 í kvöld. Þeir sem ekki hafa skráð sig fyrirfram eru beðnir um að mæta tímanlega í kvöld og skrá sig þannig að vel gangi að byrja mótið.
Guðrún Jörgensen og Björn Arnarson unnu einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum með glæsilegu skori, 64,3%. Næst voru Soffía Daníelsdóttir og Óli Björn Gunnarsson með 57,9% og í 3ja sæti voru Ásgeir Yngvi Jónsson og Siguðrur G.
Aðaltvímenningur Bridgefélags Kópavogs hefst næsta fimmtudag, 31 janúar. Spilaður verður fjögurra kvölda barómeter, allir við alla. Spiluð verða á bilinu 25-30 spil hvert kvöld en það fer eftir fjölda para og fjölda umferða.
Næsta miðvikudagskvöld munum við spila ca 5 kvölda sveitarokk (Aðalsveitakeppni) Barometer. Stefnum að því að vera með 10 borð svo ég hvet alla til að mæta.
Til hamingju Erla og sveitafélagar
Góðan daginn ágætu bridgespilarar. Þá er löngu og ströngu upphitunarmóti fyrir aðaltvímenning BR lokið. Vonandi skemmtu sér allir vel.
Aðalsveitakeppni félagsins hófst þann 15. janúar. 8 sveitir mættu til leiks og raðar spilastjóri pörum saman í sveitir með það að markmiði að búa til sem jafnastar sveitir.
Eftir 2 kvöld af 5 leiða Pétur Guðjónsson og félagar í sveit Old Boys. Með honum leika Sveinn Pálsson, Jónas Róbertsson, Stefán Ragnarsson og Grettir Frímannsson.
Bridgefélag Reykjavíkur spilar 1 kvölds tvímenning í kvöld 22.janúar Spilað verður á Hótel Loftleiðum og hefst kl.
Spilakvöld Miðvikudagsklúbbsins verður á Hótel Reykjavík Natura (fyrrum Hótel Loftleiðir) miðvikudaginn 23. janúar. Það verður spilað samhliða Stjörnutvímenningnum á Bridgehátíð.
Sveit BÓ (Björgvin Már, Sverrir, Ísak, Vignir, Stefán) er með 41 stiga forystu þegar 1 umferð er eftir af Aðalsveitakeppni félagsins. Þeir unnu fullnaðarsigur gegn sveit Svölu Pálsdóttur sem var í 2. sæti fyrir næststsíðustu umferð.
Janúarbutler Briddsfélags Selfoss hélt áfram fimmtudaginn 17. janúar. Miklar sviptingar urðu á toppnum og eru komnir nýjir menn á toppin og hefur staðan jafnast töluvert.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar