Rangæingar -- Góðglaðir gestir byrja vel

miðvikudagur, 23. janúar 2013

Aðalsveitakeppni félagsins hófst þann 15. janúar.   8 sveitir mættu til leiks og raðar spilastjóri pörum saman í sveitir með það að markmiði að búa til sem jafnastar sveitir.    Þó er sú undantekning á að ein gestasveit tekur þátt og hana skipar nýtt par með góðum gestum frá Selfossi.

 Sveitn sú fer vel af stað og eftir 2 umferðir er hún efst með 45 stig en Drengirnir og dísin eru í 2. sæti með 38 stig.   Þar á eftir eru svo Maggar og aðrir menn með 33 stig.

Butlerinn úr 2. umferð (fyrri hálfleik) má sjá hér og úr seinni hálfleik hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar