Garðar Garðarsson og Ómar Olgeirsson urðu efstir í einskvölds tvímenning hjá Miðvikudagsklúbbnum. Þeir fengu +86,5, 0,1 stigi meira en Guðjón Sigurjónsson og Rúnar Einarsson.
Nú er að síga á seinni hlutann á heimsmeistaramótinu í bridge. Íslendingar eiga fulltrúa í mótinu um Feneyjarbikarinn en Hjördís Eyþórsdóttir spilar fyrir USA 2. Sveitin tapaði í 8-liða úrslitum fyrir Frakklandi með aðeins 1 impa! Norðmenn og Bandaríkjamenn spila til úrslita í opnum flokki á heimsmeistaramótinu í brids, sem stendur nú yfir í Shanghai í Kína.
8. Stjórnarfundur BSÍ haldinn miðvikudaginn 10. okt. 2007 kl 17:30. Mættir voru: Guðmundur Baldursson, Garðar Garðarsson, Helgi Bogason, Hrafnhildur Skúladóttir, Loftur Þór Pétursson, Ólöf Þorsteinsdóttir, Ómar Olgeirsson, Stefanía Sigurbjörnsdóttir og Sveinn Rúnar Eiríksson.
Stefán Stefánsson og Vignir Hauksson/Skúli Skúlason unnu glæsilegan sigur í GRAND HÓTEL bötler BR og fengu að launum glæsilegt jólahlaðborð og gistingu á GRAND HÓTEL.
Spilað er öll sunnudagskvöld og hefst spilamennska kl. 19:00. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14. Allar nánari upplýsingar veitir Sturlaugur Eyjólfsson í símum: hs: 555-4952 gsm: 569-7338 Allir spilarar eru velkomnir.
16 pör spiluðu einskvölds tvímenning í Miðvkudagsklúbbnum 3. október. Hulda Hjálmarsdóttir og Halldór Þorvaldsson unnu og fengu glæsileg bókarverðlaun.
7. Stjórnarfundur BSÍ Haldinn miðvikudaginn 3. okt. 2007 kl 17:30. Mættir voru: Guðmundur Baldursson, Garðar Garðarsson, Hrafnhildur Skúladóttir, Ísak Örn Sigurðsson, Loftur Þór Pétursson, Ómar Olgeirsson, Stefanía Sigurbjörnsdóttir og Sveinn Rúnar Eiríksson.
A.Hansen tvímenningurinn byrjaði 1. október hjá Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Staðan eftir 1.
Ljóst er að mikil spenna gæti orðið á lokakvöldi Grand hótel móti BR sem stendur núna yfir. Á öðru kvöldi skoruðu Páll Valdimarsson og Símon Símonarson 63 impa, Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson skoruðu 54, Ómar Olgeirsson og Kristján Blöndal 51. Dugði það öllum þessum pörum til að komast í +.
Nú er hafið vetrastarfið hjá Bridgefélagi Akureyrar í nýju og fínu húsnæði í Lions salnum í Skipagötu. Það hófst með 2.kvölda Startmóti Sjóvá með þáttöku 14 para en fyrra kvöldinu er lokið og það voru þeir Valmar og Pétur sem náðu glæsilegum árangri og leiða eins og er.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar