Sjöunda og áttunda umferð í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs voru spilaðar í kvöld. Eftir sigur Garðs Apóteks á sveit Þóru Hrannar í áttundu umferð munar nú aðeins þremur stigum á sveitunum í tveimur eftstu sætunum.
Sl. þriðjudag hófum við Rangæingar leik í 5 kvölda Butler. 12 pör mættu til leiks, þ.á.m. góðir gestir. Gestrisni okkar Rangæinga er annáluð og hér í sveit hefur ávallt verið til siðs að draga fram það besta sem til er í búrinu hverju sinni, þegar gesti ber að garði.
Eins kvölds butlertvímenningur var spilaður hjá BH í kvöld.
Breytingar urðu á toppi mótsins, þegar tveimur kvöldum af þremur er lokið. Kúabóndinn í Stóra Ármóti tók forystuna ásamt aðstoðarmanni sínum. Það stefnir í spennandi lokakvöld.
Eftir sex imferðir af fimmtán í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs er sveit Þóru Hrannar aftur orðin efst með 93,5 stig og hefur 10 stiga forystu á Garðs Apótek.
Eftir endalausar upphitanir var loksins komið að alvörunni sl. þriðjudag á Heimalandi. Gjaldkerinn dró upp veskið og gaukaði að spilastjóra nokkrum bjórum, sem hann hafði fengið á góðu verði í einhverri nauðþurftabúð.
Þær sveitir sem ætla að vera með í 2.deild deildakepnninar sem fram helgina 17-18.nóvermber eru beðnar um að skrá sig fyrir miðnætti 15.nóv. hægt er að skrá sig á bridge@bridge.
Kristján Már og Vilhjálmur leiða eftir fyrsta kvöldið af þremur í þriggjakvölda butlertvímenningi.
Eftir fjórar umferðir af fimmtán í Aðalsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs eru liðsmenn SFG oorðnir efstir með tveimur stigum meira en sveit Þóru Hrannar.
Norhern Lights 2019
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar