Þá er komið að Aðaltvímenningi félagsins. Fjölmennum og gerum mótið sem skemmtilegast. Stjórnin.
Sl þriðjudagskvöld var leikin 4. umferðin í sveitakeppni félagsins. Varmahlíðarvinir unnu ekki eins stóran sigur og oftast áður, enda gyrtu Grundargæjar sig í brók í síðari hálfleik, eftir afleitan fyrri hálfleik.
Þriggja kvölda butler tvímenning lauk hjá félaginu á s.l. fimmtudag. Efstir voru þeir Guðmundur og Björn og næstir á eftir þeim voru Kristján og Gulli.
Í kvöld var spilað fyrsta kvöldið af fjórum í Aðaltvímenningi Bridgefélags Kópavogs. Spilaður er barómeter með 6 spilum í umferð og spila öll pörin einu sinni við öll hin á kvöldunum fjórum.
Suðurlandsmót í tvímenning verður haldinn föstudaginn 20.febrúar n.k. kl. 18:00 og verður spilað í Félagsheimilinu að Flúðum Hægt er að skrá sig í skráningarkerfi Bf.
AÐALTVÍMENNINGUR Bridgefélags Kópavogs hefst fimmtudaginn 05 febrúar kl. 19:00. Skráning hjá Jörundi s. 699-1176 eða hjá Þórði; thorduring@gmail.
Sl. þriðjudagskvöld settust Rangæingar að spilum að vanda og nú til að leika 3ju umferð í sveitakeppni félagsins. Varmahlíðarvinir fara mikinn og leggja hvern andstæðinginn á fætur öðrum að velli.
Vegna beinnar útsendigar frá 16 liða úrslitum á HM í handbolta verður mætingu í aðaltvímenningin frestað um klukkutíma og hefst klukkan 20:00, ef ekki kemur til framlengingar.
Kristján Már og Gunnlaugur töku forystu í butler tvímenningi félagsins. Mótinu verður framhaldið fimmtudaginn 5. febrúar. Þar sem ekki spilað næsta fimmtudag vegna briddshátíðar.
Janúar-Monrad Bridgefélags Kópavogs lauk í kvöld þegar þriðja og síðasta kvöldið var spilað. Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson náðu besta skori kvöldsins sem dugði þeim í þriðja sætið samanlagt en öruggir sigurvegarar urðu Birkir Jón Jónsson og Hrólfur Hjaltason/Kristján Blöndal.
Og sveiitakeppnin heldur áfram. Í gærkvöldi var leikin önnur umferð. Sýslumannsfrúin í Varmahlíð og aðrir Varmahlíðarvinir voru ekkert sérlega vinalegir við andstæðinga sína, Dalsdrengina, í gær.
Gunnlaugur og Kjartan unnu Cavendish tvímenning BR örugglega með 1935 stig Sjá nánar á heimasíðu BR
Í kvöld, mánudagskvöld, verður spilaður síðasti leikurinn í Aðalsveitakeppninni. Að honum loknum er spilaður stuttur tvímenningur þar sem þátttaka í tvímenningi Bridgehátíðar er i verðlaun.
1. Kjartan Ásmundsson - Stefán Jóhannsson = 511 stig 2. Jón Baldursson - Sigurbjörn Haraldsson = 484 stig 3.
Fimmtudaginn 15. janúar hófst þriggjakvölda butlertvímenningur hjá félaginu með þátttöku 11 para. Efstir eru þeir Guðmundur og Björn og í hæla þeirra narta þeir Kristján og Gunnlaugur.
Svæðamót Norðurlands Vestra í Sveitakeppni verður haldið helgina 17-18 janúar.
Eftir tvö kvöld af þremur í Janúar-Monrad keppni Bridgefélags Kópavogs eru Bernódus Kristinsson og Ingvaldur Gústafsson efstir með 115,5% samanlagt ú kvöldunum tveimur.
Sl. þriðjudag urðu fagnaðarfundir á Heimalandi, þegar við Rangæingar tókum fram spilin á ný, svona af einhverri alvöru, á nýju ári. Þá hófst sveitakeppni félagsins og var nokkur spenna í lofti.
Sjá nánar í auglýsingu hér
Næsta mót briddsfélags Selfoss er butlertvímenningur og hefst hann næstkomandi fimmtudag.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar