HSK-mótið í sveitakeppni 2016 verður haldið laugardaginn 2. apríl 2016 í Félagsheimilinu á Flúðum. Spilamennska hefst kl. 11 og verður lokið fyrir kvöldmat.
Aðalsveitakeppni BR 2016, var að þessu sinni kennd við hinn góða veitingastað "Þrír Frakkar". Þeir voru svo elskulegir að gefa góð verðlaun og kann BR þeim hinar bestu þakkir fyrir.
Tveir einskvölda páskatvímenningar næstu tvö mánudagskvöld. Skemmtum okkur í góðra vina hópi. Stjórnin.
Eftir þrjú kvöld af fjórum í Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs eru Bingi og feðgarnir með þriggja impa forystu á Sverri sterka og félaga. Öll úrslit má sjá hér.
Fyrsta kvöld af þremur í butlertvímenningi er lokið. Spilaður er butler. Karl og Össur eru efstir.
Sl. þriðjudag komu 26 bridgeunnendur í Rangárþingi saman að Heimalandi til að leika fyrstu umferð í Samverkstvímenningnum. Spilastjóri var í hátíðaskapi, enda nýkrýndur sveitakeppnismeistari félagsins.
Næsta mánudag verður haldinn einskvölds einmenningur. Vegleg (Bragð)góð veðlaun. Mætum með bros á vör og hlæjum svolítið með spilamennskunni.
Mér datt í hug þessi vísa þagar úrslitin lágu fyrir. Hafnfirðingar hýrir í húsi rauðu. Á einu borði skiluðu þeir auðu. Sögðu þeir og svínuðu mest sóló.
Núna er Meistaratvímenningi lokið á Suðurnesjum og var þáttaka svona þokkaleg. Úrslit og spil hægt að sjá hér. Næst ætlum við að spila þriggja kvölda sveitarokk þar sem 2 kvöld telja.
Þeir Magnús, Gísli, Gunnar Björn og Björn sigruðu aðalsveitakeppni félagsins, þrátt fyrir harða atlögu frá Kristjáni Má og félögum. Næsta mót félagsins er þriggja kvölda tvímenningur.
Eftir tvö kvöld af fjórum í Hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs er sveit Sverris sterka efst með 1044 stig en næstu sveitir eru með 1014 og 1016 stig.
Stefán Sigurðsson og Elías Einarsson unnu með 64,8%. Jón Óskar Carlsson og Karl Ómar Jónsson voru í 2. sæti með 60,2% og í 3ja sæti voru Hermann Friðriksson og Ingólfur Hlynsson.
Spilastjóri má vart mæla enn, slík var spennan í síðustu umferð sveitakeppninnar hjá okkur Rangæingum. Eins og menn muna, alla vega þeir minnugri, gátu 5 sveitir af 8 unnið sveitakeppnina þegar síðasta umferðin hófst.
Röð þriggja efstu sveita breyttist ekki á fjórða kvöldi aðalsveitakeppninnar. JE Skjanni heldur efsta sætinu og Kvika og Garðsapótek koma þar á eftir.
Lokastaðan
Gunnar Björn heldur góðri forystu þegar þremur kvöldum af fjórum er lokið í aðalsveitakeppninni. Mótinu lýkur næstkomandi fimmtudag og verður hart sótt að þeim.
Fyrsta kvöldið af fjórum í hraðsveitakeppni Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld.
Enn æsast leikar í sveitakeppni félagsins og muna menn vart aðra eins spennu. Einstaka kona telur sig þó muna eftir ámóta spennu í sínu ungdæmi og þá helst á hernámsárunum þegar borðalagðir dátar spígsporuðu um íslenska grund, einhverjum sprundum landsins til gleði en sauðskinnskóuðum ýtum flestum til ama.
Næsta fimmtudag, 25 feb. hefst fjögurra kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi Kópavogs. Skráning er hjá Jörundi s. 699-1176 og thorduring@gmail.
BRIDDSMÓT VALS 2016 Briddsmót VALS verður haldið í húsnæði Bridgesambands Íslands Síðumúla 37, 3. Hæð fimmtudaginn 3.3.2016 klukkan 19.30 Þátttakendur sem vilja skrá sig rafrænt sendi tölvupóst á póstfangið: sigtryggurj@simnet.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar