Rangæingar -- Bjórunnendur?

miðvikudagur, 9. mars 2016

Sl. þriðjudag komu 26 bridgeunnendur í Rangárþingi saman að Heimalandi til að leika fyrstu umferð í Samverkstvímenningnum.   Spilastjóri var í hátíðaskapi, enda nýkrýndur sveitakeppnismeistari félagsins.   Því ákvað hann að draga upp úr vasa Kristjáns gjaldkera veski félagsins og veita vot verðlaun, sérstaklega fyrir þetta fyrsta kvöld í tvímenningnum.

Eins og mönnum er í fersku minni leiddu þeir Efstu-Grundar drengir sveitakeppnina þegar hún var hálfnuð en þá dró af þeim og enduðu þeir í fjórða sæti.   En nú hrukku þeir drengir í gang og er skrásetjari fyrir sitt leyti kátur með að það var ekki fyrr en sveitakeppninni var lokið.    Pörin frá Efstu-Grund urðu nefnilega í fyrsta og öðru sæti þetta fyrsta kvöld í tvímenningnum.   Glöggir menn bentu hins vegar á þá staðreynd að verðlaunin kunni að hafa spilað eitthvað inn í og blásið þeim drengjum baráttuanda í brjóst.   Skrásetjara þykir það þó ólíklegt, enda þykir þeim flestum sopinn vondur og enginn þeirra drengja bragðað dropa í háa herrans tíð, alla vega ekki síðan um helgina.

Okkar elskaði og dáði formaður kom í mark með Tottenhamtrukkinn á skínandi skori, 63,3% og Elli Kallinn kom í mark með 61,8% skor.   Aðrir fengu minna.

Úrslitin og spilin má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar