JE Skjanni sigraði í aðalsveitakeppni BR og Þriggja Frakka

miðvikudagur, 16. mars 2016

Aðalsveitakeppni BR 2016, var að þessu sinni kennd við hinn góða veitingastað "Þrír Frakkar". Þeir voru svo elskulegir að gefa góð verðlaun og kann BR þeim hinar bestu þakkir fyrir.
Sveit J.E. Skjanna tók forystuna snemma móts og sigldu í góðum byr til sigurs. Keppnin um annað sætið var meira spennandi, en að lokum var það sveit Garðs Apóteks sem náði því og sveit Don Julio kom þar skammt á eftir í því þriðja.
Úrslit voru eftirfarandi:
1. J.E Skjanni (169,86 stig)
2. Garðs A pótek (151,20 stig).
3. Don Julio (149,73 stig).
4. Kvika (149,66 stig).
5. Málning (149,34 stig).
6. Doktorinn (145,77 stig).

Sjá myndir á facebook   - Öll úrslit hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar