Rangæingar -- Feðgarnir

miðvikudagur, 2. mars 2016

Spilastjóri má vart mæla enn, slík var spennan í síðustu umferð sveitakeppninnar hjá okkur Rangæingum.   Eins og menn muna, alla vega þeir minnugri, gátu 5 sveitir af 8 unnið sveitakeppnina þegar síðasta umferðin hófst.  Efstu sveitirnar, sem þó voru ekki nema sjónarmun á undan næstu tveimur sveitum, mættust í innbyrðisleik en hinar þrjár áttu leiki gegn sveitunum í 6.-8. sæti.  Úrslit gátu því farið á alla vegu.

Efstu-Grundar menn og Ytri-Skóga kappar náðu ekki að hemja spennustigið, enda ungir og óreyndir margir, og luku leik í 4. og 5. sæti eftir útreiðir í sínum leikjum.   Ægissíðu öðlingarnir mættu til leiks með stóíska ró að vopni og unnu sinn leik næsta örugglega og lyftu sér í 3. sætið með 13,65 stiga sigri.   Úrslitaleikurinn var því hreinn um sigur í mótinu.   Kanastaða kempurnar börðust vel en máttu ekki við vel samstilltu liði Neðri-Dals drengja sem unnu leikinn 11-9 og þar með sveitakeppnina.   

Þetta fyrirkomulag á keppninni, þ.e. að reyna að búa til sem jafnastar sveitir, hefur reynst okkur Rangæingum afar vel og gert keppnina stórskemmtilega.   Líklega er þetta einn þeirra þátta sem gera bridgelífið í Rangárþingi svo öflugt sem raun ber vitni.   Sveitakeppnina geta nefnilega allir unnið.   Skýrasta dæmið um það er sveitaskipan sigursveitarinnar.  Með skipstjóranum og hænsnabóndanum skipuðust í sveit minkabændurnir í Neðra Dal, feðgarnir Steinn Logi og Hjalti, sem byrjuðu að spila fyrir tveimur árum síðan.   Svo fór að Steinn Logi spilaði aðeins eina umferð, taldi það nóg og treysti minni spámönnum fyrir þessu.  Fór fyrst erlendis, þá heim að klappa minkunum, og ákvað loks að nota tímann til að slasa sig á á fæti.   Í hans stað kom sonur skrásetjara, fæddur 1993.  Sá lærði spilið í Fjölbrautarskóla Suðurlands, hjá hinum aldna höfðingja og heiðursmanni Helga Hermannssyni, fyrir um fjórum árum en hefur ekki tekið upp spilastokk síðan, ekki fyrr en hann leysti Stein Loga af í sveitakeppninni.   Gömlu mennirnir í sveitinni spiluðu ekki betur en ætlast mátti til af þeim en þeir peyjarnir langt umfram væntingar og sigurinn í sveitakeppninni er því fyrst og fremst þeim að þakka.

Mönnum ertíðrætt um meðalaldur spilara á Íslandi en meðalaldurinn í þessari sigursvet er 41,25 ár.   Skrásetjari óskar sjálfum sér til hamingju með árangurinn en einkum félögum sínum, sérstaklega ungu drengjunum.   Á myndinni eru þeir kampakátir drengirnr.

Sigurvegarar í Butlernum urðu Moldnúpsvertinn og Skógabóndinn, en þeir félagar spiluðu einkar jafnt og vel allt mótið.   Innilega til hamingju drengir.  Mynd af þeim félögum

Hér verður svo að setja mynd af hetjum keppninnar, þeim Ella Bonanza og Kalla Smirnov.

Úrslitin í sveitakeppninni má sjá hér.  Spilin og butlerinn úr fyrri hálfleik hér og þeim seinni hér.  Úrsltiin í Butlernum, sem verðlaunaður verður sérstaklega á vordögum, eru svo hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar