miðvikudagur, 6. nóvember 2013
Rangæingar -- Framsóknarmenn á flugi
Sl. þriðjudagskvöld hófst 5 kvölda BUTLER-tvímenningur
félagsins. 15 pör mættu til leiks þetta fyrsta kvöld og
þarf ekkert að orðlengja það, framsóknarmennirnir og
félagshyggjuforkólfarnir Björn Dúason og Eyþór Jónsson rúlluðu
þessu hreinlega upp með skori upp á 323 einkar
glæsilegar, en svona fremur óljóst skilgreindar einingar (Imps
across the field).