Rangæingar -- Framsóknarmenn á flugi

miðvikudagur, 6. nóvember 2013

Sl. þriðjudagskvöld hófst 5 kvölda BUTLER-tvímenningur félagsins.   15 pör mættu til leiks þetta fyrsta kvöld og þarf ekkert að orðlengja það, framsóknarmennirnir og félagshyggjuforkólfarnir Björn Dúason og Eyþór Jónsson rúlluðu þessu hreinlega upp með skori upp á 323 einkar glæsilegar, en svona fremur óljóst skilgreindar einingar (Imps across the field).   Næstir inn komu Sigurður Skagfjörð og Torfi Jónsson með 240 einingar en 3ju urðu nafnarnir Halldórsson og Bjarnason með 163,3 einingar.  

Úrslitin að öðru leyti og spilin má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar