Æsispennandi lokasprettur á Suðurnesjum

föstudagur, 1. nóvember 2013

Í gær, fimmtudag, fór fram síðasta kvöldið í haustvímenningi og voru kvöldin 3 en 2 töldu.  Í harðri baráttu voru þeir Sigurjón og Oddur við þá Gunnar og Garðar.  Þeir síðarnefndu voru á gaóðri leið með að tryggja sér sigur í mótinu en það hafðist ekki og þeir Sigurjón og Oddur sigruðu þetta haustið.

Næst verður spilað 3ja kvöld hraðsveitakeppni þar sem dregið verður í sveitir hvert kvöld og eiga því allir jafnan möguleika. Skemmtilegt fyrirkomulag og hvetjum við alla til að mæta.

Úrslit má sjá hér

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar