Landsmeistarar 10 efstu þjóðanna á Evrópumótinu etja kappi Róm á Ítalu. Champions Cup byrjar fimmtudaginn 12. október og klárast á sunnudag, 15.október.
Þriggja kvölda bötlertvímenningi BR lauk þriðjudaginn 10.október. Þorlákur Jónsson og Jón Baldursson settu í fluggír síðasta kvöldið en þeir byrjuðu kvöldið í 6.sæti.
Hið sívinsæla Greifamót B.A. er hafið en það er þriggja kvölda impatvímenningur. Verðlaunahafar munu fá að skreppa út á borða á Greifann, eitt vinsælasta veitingahús norðan Holtavörðuheiðar svo til mikils er að vinna! Enda komu spilarar allt frá Dalvík til Mývatns.
Hinn vinsæli A-Hansen tvímenningur félagsins hófst mánudaginn 2. október. Staða efstu para eftir 2 kvöld af 3: (11 umferðir af 17) 1-2 Erla Sigurjónsdóttir Sigfús Þórðarson 47 1-2 Kristinn Kristinsson Halldór Svanbergsson 47 3 Hulda Hjálmarsdóttir Halldór Þórólfsson 46 4-5 Hermann Friðriksson Gunnlaugur Sævarsson 42 4-5 Hlöðver Tómasson Þórarinn Ólafsson 42 6 Magnús Sverrisson Eðvarð Hallgrímsson 28 7-8 Guðlaugur Bessason Sigurður Sigurjónsson 18 7-8 Atli Hjartarson Hafþór Kristjánsson 18 Fjöldi para er 18.
Í efstu deild er sveit Eyktar með forystu með 137 stig, sveit Garða og véla er í öðru sæti með 120 stig og sveit Grant Thornton í þriðja sæti með 118 stig.
Málarabutlerinn hófst fimmtudagskvöldið 5. október. Í mótinu taka 16 pör þátt og eru spiluð 6 spil á milli para, 5 umferðir á kvöldi. Mótinu verður síðan framhaldið 12. og 19. október.
Guðlaugur Sveinsson og Guðjón Sigurjónsson sigu framúr Hrafnhildi Skúladóttur og Jörundi Þórðarsyni í síðustu setunni og unnu kvöldið með eins stigs mun.
Seinna kvöldi Startmóts Sjóvá hjá Bridgefélagi Akureyrar er nýlokið en annar eins "jafningur" hefur vart sést. Athugli vakti að ekkert að þeim pörum sem fékk bronsstig fyrra kvöldið náði því seinna kvöldið og því var baráttan hörð um verðlaunasæti.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar