Spilakvöld nýliða hefjast að nýju eftir jólafrí fimmtudaginn 14. janúar. Hægt er að mæta með makker eða þá stakur/stök og Ómar spilastjóri spilar sjálfur eða reddar makker.
13 sveitir taka þátt í fjögurra kvölda Hereford patton-sveitakeppni hjá Bridgefélagi Reykjavíkur. Fyrirkomulagið er þannig að spilaðir eru 3x10 spila leikir.
Seinni helgi landsliðskeppninnar í opnum flokki fer fram um næstu helgi og hefst spilamennska kl. 17:00 á föstudaginn Síðasta helgin í opna flokknum verður spiluð 18-20.marz Tímatafla fyrir báða flokkana Einnig verður spilað í flokki kvenna og er fyrirkomulagið þar það sama 9 x 16 spila leikir þessa helgi Seinni helgi í kvenna flokki verður spilaður 4-6.mars n.
Fjögurra kvölda Patton sveitakeppni að byrja í BR á morgun, 5. janúar! Rúnar Einarsson getur aðstoðað við myndun sveita, síminn hjá honum 820-4595. Ágætt að mæta tímanlega og/eða skrá sveit fyrirfram á br@bridge.
Spilamennska hefst á nýju ári í kvöld. Lokakvöld sveitakeppninnar, sem frestað var vegna veðurs verður spilað í kvöld og hefst klukkan 19:00 að venju.
Sunnudaginn 3. janúar settust menn og kona prúðbúin að spilum í jólamóti félagsins. Til leiks mættu 23 pör og voru spiluð 44 spil með Monrad fyrirkomulagi.
Jólamót Bridgefélags Rangæinga verður haldið sunnudaginn 3. janúar nk. í félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli. Spilamennskan hefst kl. 11,00. Þáttöku þarf að tilkynna í síma 894 0491, Bergur Pálsson Við Rangæingar erum glaðsinna og skemmtilegir heim að sækja.
62 pör spiluðu í jólamóti BR. Ragnar Magnússon og Steinar Jónsson tóku um miðbik mótsins og létu hana aldrei af hendi og unnu með glæsilegu skori eða 67,8%.
Jólamót Bridgefélags Hafnarfjarðar fór fram í dag að Hraunseli 3. Eftir að Björk Jónsdóttir og Jón Sigurbjörnsson höfðu leitt mótið frá upphafi þá tókst Hermanni Friðrikssyni og Daníel Má Sigurðsyni að hrifsa af þeim efsta sætið í lokaumferðinni.
Kvöldið fyrir Þorláksmessu lukum við Rangæingar við 5 kvölda Butler haustins, með því að leika síðustu umferðina og sameinuðum hana árlegum jólabarómeter okkar, með verðlaunum sem sérstaklega var ætlað að passa vel með Þorláksmessu skötunni.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar