Suðurlandsmót í sveitakeppni fer fram helgina 16 og 17 janúar að Heimalandi undir Eyjafjöllum. Áætlaður spilatími: Laugardagur 10:00-1930. Sunnudagur 10:00-18:30, með fyrirvara um breytingar vegna sveitafjölda.
Sl. þriðjudagskvöld stóð til að hefja sveitakeppni félagsins en því var frestað um eina viku, þar sem einhverjir voru ekki búnir að ná sér fylllilega eftir áramótagleðina.
Annað kvöldið af þremur í Janúar-Monrad Bridgefélags Hafnarfjarðar heldur áfram annað kvöld. Ný pör geta komið inn en geta þó ekki unnið til verðlauna.
Félagar innan BSÍ fá 20% afslátt af keppnisgjöldum ef greitt er fyrir 22.janúar Ekki verður tekið við greiðslum á hátíðinni sjálfri nema frá okkar erlendu gestum Hægt er að millifæra á reikning BSÍ 115-26-5431 kn: 480169-4769 og setja í skýringu fyrir hvern er verið að greiða Eða koma á skrifstofuna og greiða þar Keppnisgjöld fyrir tvímenning er því 20.000 ef greitt er fyrir 22.jan.
Eftir tvær helgar af þremur í Landsliðskeppni í opnum flokki eru sveinn Rúnar Eiríksson og Þröstur Ingimarsson efstir með 208 impa og 19 impa forystu á annað sætið.
HSK mótið í tvímenning var haldið fimmtudaginn 7. janúar sl. í Selinu á Selfossi. Mjög góð þátttaka var í mótinu eða 20 pör, en það þýddi að það var fullt hús.
Fyrsta kvöldið af þremur í Janúarmonrad Bridgefélags Kópavogs var spilað í kvöld. Hallgrímur Hallgrímsson og Sigmundur Stefánsson urðu efstir með 63,4%.
Fimmtudagana 07, 14 og 21 janúar verður spilaður 3ja kvölda Monrad-tvímenningur hjá Bridgefélagi Kópavogs. Um er að ræða þrjú stök kvöld en spila þarf öll kvöldin til að eiga möguleika á verðlaunum.
Hið árlega HSK mót í tvímenning verður haldið hjá Bridgefélagi Selfoss fimmtudaginn 7. janúar nk. Athugið að spilamennska hefst kl. 18:00 og spilað er í Selinu á íþróttarvallarsvæðinu.
Að vanda hófum við Rangæingar seinni hálfleik vetrarins með TOPP16 einmenningnum, þar sem 16 bronsstigahæstu spilarar síðasta vetrar eiga keppnisrétt.
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar