fimmtudagur, 12. mars 2020
BH spilar á BBO á mánudaginn
Jæja góðir bridgespilarar, BH hefur ákveðið að spila ekki í
Hraunseli næstu mánudag, í staðinn ætlum við að spila á BBO, þetta
mun verða 28 spila mót þar sem eingöngu íslendingar fá að spila,
þannig að allir landsmenn geta spilað í BH, og þá er til mikils að
vinna
:)
Við eigum eftir að ákveða verðlaun en ekki ólíklegt að það
verði kanski bíómiði á parið
:)
Vigfús Pálsson
ætlar að stjórna þessu mótum fyrir okkur af sinni alkunnri
snild við byrjum að spila kl 19.00 og það verður haldið vel utanum
tíma í hverri setu.