laugardagur, 29. desember 2018
Rangæingar -- "Eins og góð dísilvél" - Jólamótið
Úrslit í jólamóti Bridgefélags Rangæinga voru talsvert betri að
en úrslitin hjá Arsenal í dag, að mati færustu
sérfræðinga.
"Engar áhyggjur fóstri, ég er eins og góð dísilvél, kannski smá
stund að hitna en svo er ég öflugur" sagði Þórður Sigurðsson við
skrásetjara, þegar 3 umferðir voru búnar af 11 og við neðstir, eða
næstneðstir.