miðvikudagur, 30. október 2013
Rangæingar -- Sundmaðurinn á flugsundi
Sl. þriðjudagskvöld mættu 10 pör til leiks á Heimaland og
spiluðu 28 spil í 7 umferðum, Monrad.
Sundmaðurinn ógurlegi Magnús Halldórsson hefur farið mikinn
undanfarið og er kominn á toppinn í Meistarakeppni félagsins eftir
að þeir félagar, Magnús og Sigurjón Pálsson, deildu 1. sætinu í gær
með bankastjórunum, Torfa og Sigurði, á 57,6% skori.