Það skiptust á skin og skúrir í dag hjá opna flokknum en nokkuð’ góður dagur í heildina. Frábær sigur gegn Svíþjóð í fyrsta leik 16.09-3.81, svo ósigur gegn Englandi 14.6-5.4 og að lokum sigur gegn Rúmeníu 11.48-8.52.
Ísland er í tólfta sæti með 84.59 stig, þremur stigum frá áttunda en það eru átta lið sem komast áfram á Bermunda bowl. Ísland er með að meðaltali 10.57 stig.
Í fyrramálið byrjum við gegn Danmörku og Bessi og Maggi hvíla. Danir eru með sitt sterkasta lið inná með þá Bilde, Schaltz, Lahrmann og Plejdrup Meister. Seinni leikir dagsins eru gegn Lettlandi og Króatíu.
Ég hef ekki séð plan fyrir Lovebridge eða BBO á morgun en finnst ansi líklegt að Ísland-Danmörk verði sýndur.
Staðan eftir átta umferðir sést á þessari síðu https://db.eurobridge.org/repository/competitions/26riga/microsite/RunningScores/Asp/RoundTeamsConditStatClassicMod.asp?qtournid=2620&qshowflag=1