Lið Vesturlands nýtti sér heimavöllinn til hins ítrasta og vann Kjördæmamótið í fyrsta skipti! Þeir tóku forystuna strax á degi 2 og héldu henni til loka.
Guðlaugur Sveinsson og Baldur Bjartmarsson unnu 22 para tvímenning með glæsilegt skor, 61,1%. Þeir fengu að launum 2 ostakörfur. Soffía Daníelsdóttir og Alda Guðnadóttir voru í 2. sæti með 59,6% og fengu eðalkonfekt að launum.
Bridgefélag Fjarðarbyggðar ætlar að spila alla þriðjudaga í sumar á ReyðarfirðiSpilamennska hefst kl. 19:30 og spilað verður í húsi verkalýsfélags Reyðarfjarðar.
Guðlaugur Bessason og Sigurður Sigurjónsson unnu einskvölds tvímenning með þátttöku 30 para. Þeir félagar voru með 62,1%. Í öðru sæti voru Páll Þórsson og Ómar Olgeirsson með 60,1%.
Kjördæmamótið í bridge verður að þessu sinni í kjördæmi Vesturlands og spilað er helgina 17-18. maí. Spilastaður verður Hótel Stykkishólmur. Kjördæmin eru beðin um að senda skráningarlista til BSÍ fyrir fimmtudaginn 15.maí n.
9. Stjórnarfundur 7.maí 2008 Mættir voru allir nema Ólöf og Júlíus sem boðuðu forföll. 1. Landsliðsmál: Kvennalandslið. Samþykkt að bæta við einum spilara enda mótið stífara en venjulega.
Einmenningsmeistari BR 2008 er Ísak Örn Sigurðsson.
Síðasta spilakvöld vetrarins hjá BK verður eins kvölds tvímenningur fimmtudaginn 8. maí. Þá fer fram verðlaunafhending fyrir helztu keppnir vetrarins og eru allir velkomnir.
Gísli Steingrímsson og Rosemary Shaw eru Íslandsmeistarar í paratvímenning árið 2008Í 2 sæti eru þau Guðrún Jóhannesdóttir og Jón Hersir Elíasson Í 3 sæti eru þau Alda Guðnadóttir og Friðjón Þórhallsson/Vilhjálmur SigurðssonVið óskum þessu pörum innilega til hamingju Heimasíða mótsins með uppfærðum úrslitum
Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í veturSjá nánar