Matthías Imsland var kosinn í stjórn evrópska Bridgesambandsins á Ársþingi Sambandsins í Riga. Fékk Matthías mjög góða kosningu og var einn af hæstu í kjörinu.
Matthías er þriðji íslendingurinn sem setið hefur í stjórn Sambandsins en áður höfðu Helgi Jóhannssonn og Jafet Ólafsson setið í stjórninni. Sýnir þetta sterka stöðu Íslands í Bridgeheiminum en íslenskir spilarar njóta virðingar í alþjóðlegum bridge.