Frábær úrslit á Evrópumótinu í Riga Mikil spenna á Evrópumótinu Skráning í bikarkeppnina Viltu læra bridge - nýliðanásmkeið og framhaldsnámskeið. Viltu læra bridge - námskeið fyrir byrjendur og lengra komna

Frábær úrslit á Evrópumótinu í Riga

sunnudagur, 5. júlí 2026

Í opna flokknum er Ísland í sjötta sæti eftir góða sigra á Portúgal og Skotlandi í dag. Er Ísland með 284.18 stig eða 11.84 að meðaltali. Í fyrramálið er spilað gegn Ungverjalandi sem ennþá eru að vonast eftir að komast í eitt af átta sætunum sem gefa rétt á Bermuda bowl. 

Seniora flokkur hefur staðið sig mjög vel og eru í áttunda sæti sem gefur rétt á heimsmeistaramótið á næsta ári. Eru Seniorar búnir að spila við flestar af efstu þjóðunum svo vonandi bæta þeir bara í. Virkilega vel gert.

Í kvenna flokki hefur verið erfitt á mótinu, en fer í reynslubankann og mun nýtast okkur í framtíðinni.