Mikil þátttaka í jólamótum

þriðjudagur, 27. desember 2022

Skráningar hafa gengið mjög vel í jólamótunum þetta árið, 

Uppselt er í jólamót BR sem haldið er á föstudag klukkan 17.00 og búið að loka fyrir skráningu. 

82 pör eru skráð í jólamót BH sem haldið er miðvikudaginn 28.des klukkan 17.00 en lokað verður fyrir skráningu í 85. 

Mikil áhugi er á ÍV móti Bridgefélags Akureyrar sem er á fimmtudag klukkan 17.00 og það sama má segja um nýársmót Norðurljósaklúbbsins á sunnudag sem haldið er á Realbridge klukkan 13.00.

 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar