Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ og Bridgesambandið í samstarf

þriðjudagur, 6. desember 2022

Framkvæmdastjóri BSI Matthías imsland og Skólameistari FMOS Valgarð Jakobsson

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ og Bridgesambandið hafa farið í samstarf um kennslu á Bridge. FMOS hefur sett inn á námskrá 3e og 5e nám í bridge. Mun Bridgesambandið sjá um kennslu miðlægt og er unnið að því að fá fleiri framhaldsskóla til að bjóða upp á þetta nám í sinni námskrá og taka þátt í miðlæga náminu. Þar fyrir utan er FSU að bjóða upp á val í Bridge undir forystu Helga Hermanns og er nokkur ásókn í námið. 

Í þessum grunnáfanga í bridds er farið í alla helstu grunnþætti spilsins. Nemendur byrja á því að læra einfaldaða útgáfu sem nefnist míníbridds þar sem stigagjöf, spilamat, úrspilun og vörn eru í forgrunni. Í framhaldi af því er farið að spila hefbundið bridds með notkun sagnkerfis. Í þessum grunnáfanga læra nemendur Standard sagnkerfið í nokkuð einfaldri mynd. Í kennslustundum er blandað saman æfingum og spilamennsku. Töluvert er spilað á internetinu og skrá nemendur sig á BridgeBase þar sem hægt er að setja upp ákveðna tegund af spilahöndum og greina síðan spilin í hópumræðum á eftir. Í lok áfangans er stefnt að því að nemendur spili annað hvort í byrjendamóti eða einhvers konar keppni.

Þekkingarviðmið

  • Mínibridds
  • grunnreglum í Bridds
  • mismunandi stigakerfum
  • standard sagnkerfinu
  • notkun sagnabakka og hegðunarreglum við spilaborðið
  • notkun briddsforrita á netinu og hegðunarreglum í netheimum

Leikniviðmið

  • meta styrk spila og tjá þann styrk með sagnkerfi
  • vinna með spilafélaga til að ná réttum samningi
  • gera spilaáætlun sem sagnhafi til að ná hámarksfjölda slaga
  • vinna með spilafélaga í vörn með leyfilegum merkingum
  • reikna út stig á mismunandi formi

Hæfnisviðmið

  • sýna samvinnu og umburðarlyndi með spilafélögum
  • vinna skipulega að settum markmiðum
  • þróa sinn eigin spilastíl
  • þróa hæfni í áætlunargerð
  • spila bridds sér til ánægju og yndisauka

Nánari upplýsingar á námskrá.is

 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar