Tap gegn Noregi

laugardagur, 28. maí 2022

Íslenska kvennaliðið fékk 8,24 stig gegn norska liðinu og eru aðeins tveimur stigum frá öðru sæti. Í opna flokknum fengust 5,82 stig.

Í seinni umferðina verður raðað eftir stöðu. 

Íslenska kvennaliðið er til alls líklegt í seinni umferðinni en þær voru í raun óheppnar að fá ekki 10 stig gegn því norska, þar sem farið var í 4 hjörtu einn niður á öllum borðum nema þær norsku fóru í 3 hjörtu slétt staðin gegn Íslandi í síðasta spili. 

Góður hugur er í spilurum í opna flokknum, menn hafa verið í þessari stöðu áður en náð að rjúka upp töfluna í seinni umferðinni. 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar