Kvennaliðið með sigur á Danmörku

föstudagur, 27. maí 2022

Kvennaliðið vann Danmörku í 4.umferð NM 10,31-9,69. Er liðið í öðru sæti aðeins rúmlega 3 stigum á eftir Svíum sem eru í 1.sæti.

Ekki gekk eins vel í opna flokknum þar sem liðið tapaði stórt fyrir Danmörku. Er á brattann að sækja og er liðið í neðsta sæti. Mótið er þó ekki einu sinni hálfnað og allt getur gerst ennþá. 

Ekki verður spilað meira í dag en það er stór dagur á morgun þar sem spilaðir verða 4 leikir. 

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar