Hótel Norðurljós-nyrsta hótel landsins

þriðjudagur, 26. apríl 2022

Um leið og við viljum óska Hótel Norðurljósum til hamingju með sigurinn á Íslandsmótinu í sveitakeppni viljum við vekja athygli spilara á hótelinu.

Hótel Norðurljós er Raufarhöfn og er nyrsta hótel landsins. Umhverfið er algjörlega dásamlegt og eru myndir á facebook síðu hótelsins hreinlega listaverk.  Á hótelinu eru 18 tveggja manna herbergi þar af eru 15 þeirra með sér baðherbergi.

Veitingastaður hótel Norðurljósa leggur sérstaka áherslu á hráefni úr héraði. Þar er auðvitað fiskur í sérstöðu auk lambakjöts beint frá býli. 

Útsýnið úr veitingasal er einstakt, þaðan sést yfir höfnina þar sem er fjölskrúðugt fuglalíf.  

Á sumrin er iðandi fuglalíf á höfninni, í Höfðanum og á engjunum vestan við hótelið. Á góðum degi hafa verið greindar yfir tuttugu fuglategundir út um glugga á hótelinu og nær sextíu tegundir innanbæjar á Raufarhöfn

Facebook síða hótelsins er.

Hótel Norðurljós - Hotel Nordurljos | Facebook

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar