Landsliðskeppni

laugardagur, 31. desember 2016

Eitt mikilvægt verkefni býður landsliðsins í opnum - og kvennaflokki á næsta ári Norðurlandsmeistaramótið sem haldið verður í Horsens í Danmörku dagana 2 og 3 júní. Ákveðið hefur verið að fara með 2 pör í hvorum flokki og verður keppt um þessi landsliðssæti öll á tveimur helgum 7 og 8. janúar og síðan 4 og 5. mars. Áformað er að spila frá kl. 10.00-17.00 báða dagana, og verða peningaverðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin. Tvö efstu pörin eftir þessar tvær spilahelgar skipa landslið Íslands. Verið getur að farið verði með 3 pör á mótið sérstaklega ef Beltnesku löndin verða með. Landsliðsnefnd velur þá þriðja parið.  Stjórn Bridgesambandsins fær boð um þátttöku á nokkrum mótum, landsliðsnefnd mun velja pör til þeirrar þátttöku ef og þegar af verður. Evrópumótið verður í júní 2018 og hefst undirbúningur upp úr miðju næsta ári. Fyrirkomulag við val á landsliðum fyrir Evrópumótið verður tilkynnt síðar.
skráning í s. 587 9360 og á bridge@bridge.is
                     
                

Reykjavík Bridge Festival

Frítt fyrir börn og ungmenni Öll börn og ungmenni 20 ára og yngri fá frítt í bridge í vetur
Sjá nánar